Fótbolti

Stefndi í endur­komu en Siggi Raggi og læri­sveinar eru úr leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur verið að gera góða hluti með NSÍ Runavík í sumar en nú getur liðið einbeitt sér að titilbaráttunni heima fyrir.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur verið að gera góða hluti með NSÍ Runavík í sumar en nú getur liðið einbeitt sér að titilbaráttunni heima fyrir. Vísir/Sigurjón

Lærisveinar Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar í NSÍ Runavík eru úr leik í Sambandsdeildinni eftir jafntefli á móti svissneska félaginu Lugano í Færeyjum í kvöld.

Leikurinn endaði með 2-2 jafntefli og Lugano fór því áfram 4-2 samanlagt.

NSÍ byrjaði samt vel og komst í 2-0 með mörkum frá Petur Knudsen (29. mínúta) og Marius Kryger Lindh (61. mínúta). Þau úrslit hefðu komið leiknum í framlengingu en Lugano-menn minnkuðu muninn sex mínútum eftir síðara markið og jöfnuðu svo metin tíu mínútum fyrir leikslok.

Lugano mætir CSKA Sofia frá Búlgaríu í umspilinu um laust sæti í Sambandsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×