Golf

Gunn­laugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson þurfti að hætta að keppni vegna meiðsla og gat því ekki klárað fyrsta hringinn.
Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson þurfti að hætta að keppni vegna meiðsla og gat því ekki klárað fyrsta hringinn. Getty/ Cameron Smith

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson þurfti að hætta keppni í golfmóti í fyrsta sinn þegar hann kláraði ekki fyrsta hring á bandaríska áhugamannamótinu, U.S. Amateur Championship, í gær.

Vísir sagði í gær frá því að Gunnlaugur Árni hefði hætt keppni eftir ellefu holur þar sem hann var kominn ellefu höggum yfir par.

Nú vitum við meira um ástæðu þess að þessi stórefnilegi kylfingur gat ekki klárað hringinn og hver var aðalástæðan fyrir því að allt gekk á afturfótunum.

Gunnlaugur Árni hefur verið að glíma við meiðsli í smá tíma og þurfti þarna að taka afar erfiða ákvörðun á milli þess að pína sig áfram eða hugsa um framhaldið á ferlinum.

„Ég hef verið að díla við meiðsli í smá tíma og þurfti að taka ákvörðun um að setja heilsuna í fyrsta sæti,“ sagði Gunnlaugur Árni í stuttu spjalli við Vísi.

„Það er mjög leiðinlegt að þurfa að hætta í golfmóti í fyrsta skipti en heilsan til lengri tíma er mikilvægari,“ sagði Gunnlaugur Árni.

Gunnlaugur Árni hefur átt magnað ár þar sem hann keppti meðal annars fyrstur íslenskra karlkylfinga á Opna bandaríska risamótinu en núna mun hann vinna að því að ná sér af þessum meiðslum.


Tengdar fréttir

Gunnlaugur Árni náði stórum áfanga

Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson bætti rós í hnappagat sitt í gær þegar hann komst með liði LSU inn á úrslitamót bandaríska háskólagolfsins.

Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson skrifaði nýlega undir samning við eina stærstu umboðsskrifstofu heims. Gunnlaugur var sérlega eftirsóttur af umboðsmönnum um heim allan.

Gunnlaugur í besta sæti Íslendings

Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram að rita nýja kafla í íslenska golfsögu, etir að hafa fyrstur íslenskra kylfinga verið valinn í úrvalslið Evrópu fyrir Bonallack-bikarinn sem fram fór í þessum mánuði.

Gunnlaugur vann en Evrópa tapaði

Gunnlaugur Árni Sveinsson vann indverska undrabarnið Kartik Singh í einvígi á lokadegi Bonallack-bikarsins í golfi, í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag. Evrópa tapaði hins vegar keppninni, gegn úrvalsliði Asíu og Eyjaálfu, með aðeins eins vinnings mun.

Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn

Gunnlaugur Árni Sveinsson var hluti af alþjóðaliði sem endaði á að vinna Arnold Palmer-bikarinn. Alþjóðaliðið keppti gegn Bandaríkjunum en aðeins eitt stig skildi liðin að.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×