Íslenski boltinn

Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Þórsarar eru ósigraðir í síðustu þremur leikjum og sitja ekki lengur í neðsta sæti deildarinnar.
Þórsarar eru ósigraðir í síðustu þremur leikjum og sitja ekki lengur í neðsta sæti deildarinnar. vísir / guðmundur

Christian Greko Jakobsen skoraði eina markið í 1-0 sigri Þórs gegn Breiðablik í 17. umferð Bestu deildar karla.

Einar Freyr Halldórsson átti hornspyrnu á 42. mínútu frá vinstri vængnum sem hann setti í átt að markinu og boltinn sveif alla leið á fjærstöngina. Greko þurfti einungis að reka löppina út í boltann sem fór rakleiðis upp í þaknetið.

Þór lyfti sér upp af botni Bestu deildarinnar með þessum sigri og situr nú í 11. sæti, tveimur stigum fyrir ofan FH og jafnt KA að stigum. 

Markið sem tryggði Þorpurum stigin þrjú má sjá hér fyrir neðan. 

Klippa: Þór - Breiðablik 1-0

Tengdar fréttir

„Það er erfitt að eiga við okkur“

Eiður Benedikt Eiríksson, aðstoðarþjálfari Þórs, stýrði liðinu til sigurs gegn Breiðablik í fjarveru Sigurðar Höskuldssonar sem tók út leikbann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×