Vann bráðabanann eftir að hafa beðið lengi í klúbbhúsinu Andri Broddason skrifar 2. ágúst 2026 22:30 Shiho Kuwaki getur fagnað vel og innilega í kvöld eftir að hafa unnið sitt fyrsta risamót á ferlinum. David Cannon/Getty Images Shiho Kuwaki vann Opna breska risamót kvenna í golfi eftir umspil gegn Esther Henseleit. Hún var þremur höggum frá efsta sætinu í byrjun dagsins.
23 ára Japaninn Shiho Kuwaki vann sitt fyrsta risamót í dag þegar hún náði að vinna umspil gegn Esther Henseleit. Kuwaki kláraði sinn hring snemma og þurfti að bíða lengi í klúbbhúsinu til að fá staðfestingu á því hvort hún myndi vinna mótið. Sigurinn virtist vera að sigla í höfn þangað til þýski kylfingurinn Esther Henseleit hitti úr þrettán metra pútti fyrir fugli og endaði jöfn Kuwaki á fimm höggum undir pari. Því var ljóst að úrslitin réðust í bráðabana. Á fyrstu umspilsholunni náðu bæði Kuwaki og Henseleit pari en Henseleit fékk skolla á annarri umspilsholunni eftir að upphafshöggið hennar fór í ökkla á öryggisverði. Kuwaki fékk öruggt par og vann því sitt fyrsta risamót á ferlinum. Yealimi Noh var með þriggja högga forskot fyrir hringinn í dag en spilaði ekki vel í dag. Hún spilaði hringinn í dag á þremur höggum yfir pari og endaði í þriðja sæti. Hún var samtals alla fjóra hringina á fjórum höggum undir pari og var því aðeins einu höggi frá því að fara í bráðabanann. Nelly Korda sem er efst á heimslistanum fór upp um tólf sæti eftir daginn í dag þar sem hún spilaði hringinn á þremur höggum undir pari. Hún endaði mótið í fjórða sæti á tveimur höggum undir pari eftir alla fjóra hringina.
Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira