Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Andri Broddason skrifar 25. júlí 2026 10:00 Þóra Sigríður bætti vallarmet GKG og blandaði sér í toppbaráttu Lexusbikarsins. Instagram: Thora_2007 Þóra Sigríður Sveinsdóttir setti nýtt vallarmet á Leirdalsvelli á öðrum keppnisdegi Lexus-bikars GKG sem fer þar fram um helgina. Hún bætti vallarmetið um tvö högg.
Lexus bikar GKG fer fram á Leiruvelli um helgina og var nóg um að vera hjá bestu kylfingum landsins í gær. Karen Lind Stefánsdóttir sem spilar fyrir heimaklúbbinn GKG er efst í kvennaflokki en stjarna gærdagsins er Þóra Sigríður Sveinsdóttir sem bætti vallarmetið af kvennateigum. Tveir kylfingar höfðu áður farið Leirdalsvöllinn á 70 höggum en Þóra Sigríður fór hringinn í gær á 68 höggum eða þrem höggum undir pari og bætti því vallarmetið um tvö högg. Hringur gærdagsins kom henni í annað sæti mótsins ásamt Fjólu Margréti Viðarsdóttur og eru þær báðar á sjö höggum yfir pari. Karen Lind er með gott forskot í efsta sætinu en hún er á þremur höggum yfir pari og með fjögurra högga forskot fyrir lokahringinn sem fer fram í dag. Í karlaflokki er Sigurður Bjarki Blumenstein kominn í efsta sætið og lék hring gærdagsins frábærlega á 64 höggum eða sjö höggum undir pari vallarins. Daníel Ísak Steinarsson er aðeins höggi á eftir honum í öðru sæti. Það dróg til tíðinda hjá Böðvari Braga Pálssyni en hann fór holu í höggi á níundu holu Leirdalsvallar. Þetta var mikilvægt högg og kom honum í fimmta sæti mótsins á þremur höggum undir pari. Hann er því kominn í fína stöðu fyrir lokahring dagsins í dag.
Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira