Kevin Keegan látinn Valur Páll Eiríksson skrifar 20. júlí 2026 14:49 Kevin Keegan er látinn, 75 ára að aldri. vísir/anton brink Kevin Keegan er látinn, 75 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Hann er goðsögn í enskum fótbolta.
Keegan greindi frá því fyrir sjö vikum að hann hefði greinst með fjórða stigs krabbamein. Hann lést eftir þá baráttu í dag, umkringdur ástvinum. Aðstandendur Keegan gáfu frá sér yfirlýsingu þar sem segir: „Fyrrverandi leikmaður og þjálfari enska landsliðsins hafði glímt við krabbamein og var umkringdur eiginkonu sinni og dætrum á síðustu stundu.“ Kev we went back such a long way @England you will be missed so much by so many - a legend of the game sending my sincere condolences to his family pic.twitter.com/vkXCPVp5eN— Peter Shilton (@Peter_Shilton) July 20, 2026 „Kevin, tvöfaldur Ballon D'Or-verðlaunahafi, var ástkær eiginmaður, faðir og afi. Fjölskyldan þakkar ótrúlegu læknateymi Kevins fyrir allan stuðninginn. Þetta er gríðarlega erfiður tími og þau biðja um rými og næði.“ Keegan er goðsögn hjá Liverpool. Hér er hann fyrir sinn fyrsta leik með liðinu árið 1971 en þá hafði hann komið frá fjórðu deildarliði Scunthorpe og varð strax stjarna í efstu deild.Liverpool FC via Getty Images Líkt og segir í yfirlýsingunni var Keegan tvisvar verðlaunaður sem besti leikmaður Evrópu, árin 1978 og 1979 en þá var hann leikmaður Hamburger SV í Þýskalandi. My Hero. My manager. My friend. Sleep easy Boss 🥲 https://t.co/3meHtqeB71— Alan Shearer (@alanshearer) July 20, 2026 Fyrir það var hann leikmaður Liverpool árin 1971 til 1977 hvar hann vann ensku deildina þrisvar, enska bikarinn og Evrópukeppni meistaraliða. Þá vann hann enska samfélagssköldinn tvisvar sem og UEFA-bikarinn. Hann vann þá þýsku úrvalsdeildina með Hamburg árið 1979. Einnig lék Keegan fyrir Scunthorpe United, Southampton, Newcastle United og Blacktown City á ferli sínum. Hann skoraði 21 mark í 63 landsleikjum fyrir England sem hann þjálfaði síðar. Hann var þjálfari Newcastle United frá 1992 til 1997 og var nærri því að fagna enska meistaratitlinum en laut í lægra haldi fyrir Sir Alex Ferguson og Manchester United vorið 1996 eftir spennandi titilbaráttu. RIP Kevin Keegan 🤞🏻❤️One of the greatest players this country has ever produced, trophies & goals galore, double Balon dor winner shows he was an absolute giant of the English game.One of the most important men in making @LFC what it is today. pic.twitter.com/fwRedN59r3— Jamie Carragher (@Carra23) July 20, 2026 Hann stýrði Fulham frá 1997 til 1999, Englandi frá 1999 til 2000, Manchester City frá 2001 til 2005 og tók til skamms tíma við Newcastle á ný árið 2008. Keegan var gjarnan kallaður King Kev og er talinn meðal betri fótboltamanna Englands frá upphafi. Hann lék sem sóknartengiliður eða framherji og var þekktur fyrir leikni sína með boltann. Keegan kom hingað til lands árið 2016 og tók þátt í pallborðsumræðum í Hörpu í aðdraganda EM karla í fótbolta. Þar sagði hann að Ísland myndi standa uppi sem sigurvegari mótsins. Sú spá rættist ekki en Íslandi tókst þó að vinna heimaþjóð Keegans, líkt og frægt er. Keegan var þjálfari Manchester City um tíma. Hann vakti gjarnan athygli fyrir að standa ekki á skoðunum sínum.Gary M. Prior/Getty Images
Andlát Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Fleiri fréttir Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Sjá meira