Golf

Aron og Guð­rún með for­ystu fyrir loka­hringinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er með góða forystu í Hvaleyrarbikarnum.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er með góða forystu í Hvaleyrarbikarnum. Getty/Charles McQuillan

Fyrir lokahring Hvaleyrarbikarsins í golfi leiða Aron Snær Júlíusson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Öllu meiri spenna er í karlaflokknum en kvennamegin.

Aron er með eins höggs forskot á Böðvar Braga Pálsson fyrir lokahringinn. Aron lék annan hringinn í dag á tveimur höggum undir pari.

Aron hefur unnið öll þrjú mótin sem hann hefur keppt á í sumar og haldi hann rétt á spilunum á morgun bætir hann fjórða sigrinum við.

Aron er samtals á fjórum höggum undir pari en Böðvar Bragi á þremur höggum undir pari. Jóhannes Guðmundsson, sem er ríkjandi Hvaleyrarbikarmeistari, er í 3. sæti á einu höggi undir pari.

Guðrún er með fimm högga forskot í kvennaflokki og í góðri stöðu fyrir lokahringinn.

Guðrún er samtals á einu höggi yfir pari en næst kemur Elsa Maren Steinarsdóttir á sex höggum yfir pari. Þóra Sigríður Sveinsdóttir er þriðja á átta höggum yfir pari og Perla Sól Sigurbrandsdóttir er í 4. sætinu á níu höggum yfir pari.

Fylgjast má með gangi mála á mótasíðu Hvaleyrarbikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×