Glampandi sól um nánast allt land og rofar nú til í borginni Freyja Þórisdóttir skrifar 17. júlí 2026 14:09 Síðustu daga hefur sú gula spókað sig víða um austanvert landið og nú njóta landsmenn á ferð og flugi góða veðursins en skýjað er á Raufarhöfn og í Reykjavík. Veðurstofan Hér á landi er sannkallað sumarveður um nánast allt land í dag, þann 17. júlí. Það eru helst íbúar á Raufarhöfn og höfuðborgarsvæðinu sem njóta ekki sólar í dag en hitinn nær rétt um tólf stigum þar en fer mest upp í um tuttugu og þrjú stig á Akureyri. Veðurfræðingur segist sjá fram á að það rofi til í borginni á hverri stundu.
Hitabylgja geisar enn í Evrópu og hefur meðalhitinn náð rúmum þrjátíu og fimm gráðum yfir daginn í löndum á borð við Frakkland og Spán. Líkt og tíðkast nær hitabylgjan ekki til Reykjavíkur en veðurfræðingur segir eiga að rofa til á hverri stundu á höfuðborgarsvæðinu. Blíðan fyrir austan og norðan smitist þó líklega ekki yfir á suðvesturhornið. „Við fáum kannski smá sól, það er nú aðeins að rofa til sko,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, og bætir við að „við fáum ekki mikið af henni“ af þeirri hitabylgju sem hefur leikið við austanvert landið síðustu daga. En aðspurður hvort heita loftið sem hafi spilað þar inn í sé tilkomið vegna hitabylgjunnar sem geisað hefur á meginlandi Evrópu síðastliðinn mánuð eða svo segir hann það ekki svo einfalt. „Ekki beint. Jú, jú, eitthvað af þessu hlýja lofti er nú að koma frá Evrópu en eitthvað kom líka frá Kanada fyrr í vikunni og í síðustu viku,“ segir Þorsteinn og útskýrir nánar: „Það er búið að vera mjög öflug lægð þarna yfir, eða suðaustur af Íslandi og norður af Skotlandi, sem hefur dregið svona suðvestanáttir yfir okkur og það þýðir svolítið skýjað, rakt loft og skýjaþykkni sem leggst hérna upp við suður- og vesturströndina.“ Fólk í borginni fljótt að gleyma Hann kveðst sjálfur hafa fengið á kenna á því undanfarið enda starfi hann í Reykjavík. Það eigi að brotna upp á hverri stundu, „þetta á að verða góður dagur“. Fram undan séu fleiri sólardagar víða um landið en það þykkni strax aftur upp á suðvesturhorninu. „Helgin er svona frekar þungbúin áfram, það þykknar strax aftur í nótt en ég er að horfa hérna út og það er aðeins farið að sjást í birtuna hérna. En þetta stendur ekki lengi.“ Þetta góða veður fyrir austan og norðan, heldur það eitthvað? „Það heldur bara áfram, já, já, sem er nú gaman fyrir þá sem eru þar áfram alveg um helgina og fram í næstu viku, segir Þorsteinn. Fyrr í sumar hafi þó verið nokkrir góðir sumardagar veðurlega séð í höfuðborginni en fólk virðist vera fljótt að gleyma þeim og horfir nú hýru auga austur. „Það er fljótt að gleyma því, það tekur bara tvo, þrjá daga að gleyma því, sko, já já. Það væri samt vissulega gott að vera á héraði núna, ég er alveg sammála því, það væri æðislegt.“
Veður Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Tengdar fréttir Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Síðustu daga hefur veðrið leikið við fólk á austurhluta landsins en á sama tíma hafa gular viðvaranir ríkt á vestanverðu landinu. Hiti fór víða yfir tuttugu og fimm gráður á Austfjörðum og Egilsstöðum um helgina og tjaldsvæði eru mörg hver að fyllast. 15. júlí 2026 21:13 Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Ríflega tuttugu verk eftir Ella Egils og dóttur hans til sýnis Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Ríflega tuttugu verk eftir Ella Egils og dóttur hans til sýnis Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann Sjá meira
Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Síðustu daga hefur veðrið leikið við fólk á austurhluta landsins en á sama tíma hafa gular viðvaranir ríkt á vestanverðu landinu. Hiti fór víða yfir tuttugu og fimm gráður á Austfjörðum og Egilsstöðum um helgina og tjaldsvæði eru mörg hver að fyllast. 15. júlí 2026 21:13