Golf

„Ég er svo lé­legur í golfi“

Andri Broddason skrifar
Rory Mcllroy var ekki sáttur við öll höggin sín þegar hann endaði í sjöunda sæti Genesis Scottish Open mótsins.
Rory Mcllroy var ekki sáttur við öll höggin sín þegar hann endaði í sjöunda sæti Genesis Scottish Open mótsins. vísir/getty

Rory Mcllroy endaði í sjöunda sæti Genesis Scottish Open mótsins en hann var ekki alltaf sáttur með höggin sín. Það er hughreystandi fyrir hinn venjulega kylfing að þeir bestu eiga líka léleg högg.

Á lokadegi Genesis Scottish Open var kominn smá pirringur í Rory Mcllroy sem er einn vinsælasti kylfingur í heimi. Hann var staddur á sextándu braut en höggið hans sem átti að fara inn á flötina misheppnaðist.

Hann missti höggið vinstra megin við flötina og á meðan boltinn var í loftinu kallaði hann: „Ég er svo lélegur í golfi.“

Það geta flestir kylfingar tengt við þessa tilfinningu þegar boltinn fer ekki þangað sem hann átti að fara og manni fallast hendur. Hins vegar eru margir ósammála því að Mcllroy sé lélegur í golfi og þrátt fyrir þetta högg endaði hann hringinn á sex höggum undir pari. Hann endaði mótið í sjöunda sæti og var tólf höggum undir pari.

„Höggið sem ég sló með 6-járninu var lélegt golfhögg. Svo í því augnabliki var ég lélegur í golfi,“ sagði Rory eftir hringinn.

Mcllroy var fimm höggum á eftir Tom Kim sem náði í sinn fyrsta sigur á PGA-mótaröðinni í þrjú ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×