Fótbolti

„Dómararnir á HM eru ekki nógu góðir“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Thomas Tuchel var ekki alltaf sáttur með störf þriðja liðsins í leik Englands og Mexíkó.
Thomas Tuchel var ekki alltaf sáttur með störf þriðja liðsins í leik Englands og Mexíkó. getty/Nick Potts

Eftir sigur Englands á Mexíkó í sextán liða úrslitum HM í fótbolta sagði Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, að dómararnir á mótinu væru ekki nógu góðir.

England vann Mexíkó, 3-2, á hinum sögufræga Azteca-leikvangi í Mexíkóborg í nótt. Englendingar voru manni færri bróðurpartinn af seinni hálfleik eftir að Jarell Quansah fékk að líta rauða spjaldið á 54. mínútu.

Staðan var þá 2-1, Englandi í vil, en bæði lið skoruðu mörk úr vítaspyrnum í kjölfarið. Þrátt fyrir mikla pressu Mexíkóa héldu tíu Englendingar út og fögnuðu sigri og sæti í átta liða úrslitum HM. Þar mæta þeir Norðmönnum. 

Í leikslok fór Tuchel ófögrum orðum um dómgæsluna á heimsmeistaramótinu. 

„Þetta er ekki nógu gott. Dómararnir eru ekki nógu góðir; fjórðu dómararnir eru ekki nógu góðir. Það er heila málið,“ sagði Tuchel.

Raúl Jiménez minnkaði muninn í 3-2 með marki úr vítaspyrnu á 69. mínútu. Alireza Faghani dæmdi víti á Harry Kane fyrir brot á Brian Gutiérrez eftir að hafa skoðað atvikið á myndbandi.

„Eru þetta klár og augljós mistök í vítinu? Alls ekki. Þeir sneru við stöðu þar sem hann dæmdi ekki einu sinni víti,“ sagði ósáttur Tuchel.

Í umfjöllun BBC um leikinn sagði Joe Hart, fyrrverandi markvörður enska landsliðsins, að Faghani hefði komist að réttri niðurstöðu í báðum vítaspyrnunum sem hann dæmdi og þegar hann rak Quansah út af.

Englendingar geta tryggt sér sæti í undanúrslitum HM með sigri á Norðmönnum í Miami á laugardaginn kemur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×