Golf

Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring

Andri Broddason skrifar
Skjáskot af myndbandi kylfings bjarga fugli úr tjörn á golfvelli Þorlákshafnar.
Skjáskot af myndbandi kylfings bjarga fugli úr tjörn á golfvelli Þorlákshafnar. Golfklúbbur Þorlákshafnar/Þórunn

Áhugavert atvik gerðist á golfvellinum í Þorlákshöfn þegar kylfingur synti út í vatn til að bjarga fugli sem var fastur í vír. Þetta var fyrsti golfhringur hennar og verður sennilega eftirminnilegur.

Fugl virtist vera fastur í vír á miðju vatni á golfvellinum í Þorlákshöfn. Þar var Aldís Embla Magnúsdóttir að spila sinn fyrsta golfhring þegar hún tók eftir fuglinum í vatninu.

Þar sá hún að það var ekki allt með felldu og fór að synda í vatninu í öllum golffötunum til að reyna að bjarga fuglinum. Við tók langur eltingaleikur sem endaði með því að kylfingurinn náði fuglinum og virtist honum mikið létt.

Það eru ekki margir sem ná fugli á sínum fyrsta golfhring og líklegast enn færri á sama hátt og Aldís Embla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×