Mormónastjarna kemur út úr skápnum Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 30. júní 2026 13:00 Raunveruleikastjarnan Layla Taylor kom út sem tvíkynhneigð á dögunum. Sebastian Reuter/Getty Images for Clarins USA Raunveruleikastjarnan Layla Taylor úr alræmdu þáttunum Secret Lives of Mormon Wives hefur fundið ástina með nýrri kærustu. Taylor kom út sem tvíkynhneigð í hlaðvarpi Jay Shetty og segir að strangt trúarlegt uppeldið hafi gert henni erfitt að skilja kynhneigð sína.
Er þetta í fyrsta sinn sem Taylor ræðir kynhneigð sína opinskátt „Í fullri hreinskilni þá vissi ég ekkert hvernig ég ætti að nálgast þetta í langan tíma,“ segir Taylor í hlaðvarpinu On Purpose sem Jay Shetty heldur uppi. „Ég er hinsegin, ég er tvíkynhneigð og ég er fyrir konur og karla.“ View this post on Instagram A post shared by Jay Shetty (@jayshetty) Layla Taylor er 25 ára gömul og ólst upp í ströngu mormónasamfélagi í Utah, Bandaríkjunum. Hún á tvö börn með fyrrverandi eiginmanni sínum Clayton Wessell. „Þegar ég var að alast upp þá passaði ég ekki inn í hópinn af mörgum ástæðum. Ég ólst upp í samfélagi þar sem allir voru hvítir og ég fann strax hvað ég stóð mikið fyrir utan sem lítil svört stelpa. Það tók meira á mig en ég áttaði mig á þá.“ Hún segist snemma hafa fundið fyrir tilfinningum gagnvart öðrum stelpum en hélt að það væri eitthvað sem hún gæti aldrei gert neitt í. „Ég fann alltaf fyrir þessu en skildi það ekki, ég gat verið að horfa á unglingaþættina Pretty Little Liars þar sem ein stelpan var að kyssa aðra stelpu og man eftir að hafa hugsað: Afhverju finnst mér þetta heitt? Ég skildi ekki þessar tilfinningar en þegar ég fór að verða vör við framsetningu á fjölbreyttum hinsegin fyrirmyndum gat ég loksins hugsað: Okei, þetta er eðlilegt.“ View this post on Instagram A post shared by Layla Taylor (@laylaleannetaylor) Hún segist þó lengi vel hafa ýtt þessum tilfinningum frá sér eins og hún gat. „Ég gerði lítið úr þeim í langan tíma en nú finnst mér ég loksins kominn á þann stað að ég nenni ekki lengur að fá ekki að vera ég sjálf. Ég vil sýna heiminum allar mínar hliðar og ég er mjög stolt af því í dag að vera komin út.“ Layla Taylor skaust upp á stjörnuhimininn í fyrstu seríu af Secret Lives of Mormon Wives en þættirnir veita innsýn í daglegt líf kvenna í Utah sem tilheyra mormónasamfélaginu þar og eru sannarlega ekki lausir við dramað. Taylor greindi frá því að engin af meðstjörnum hennar úr þáttunum hafi vitað um kynhneigð hennar fyrr en nú. View this post on Instagram A post shared by The Secret Lives of Mormon Wives (@secretlivesonhulu) „Mig langaði ekki að koma út í textaskilaboðum og mig langaði að hitta þær til að segja þeim frá þessu. Auðvitað gætu þær heyrt þetta í hlaðvarpinu fyrst en svo tala ég við þær næst þegar við hittumst,“ segir hún en hún staðfesti sömuleiðis að hún væri byrjuð með konu og vill halda nafninu leyndu eins og er.
Hinsegin Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira