Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júní 2026 19:47 Granit Xhaka er fyrirliði svissneska landsliðsins sem er komið í 32-liða úrslit á HM. getty/Jared C. Tilton Nýr knattspyrnustjóri Chelsea, Xabi Alonso, vill endurnýja kynnin við svissneska miðjumanninn Granit Xhaka hjá Sunderland.
Xhaka lék undir stjórn Alonos hjá Bayer Leverkusen. Svisslendingurinn var í lykilhlutverki hjá þýska liðinu sem vann tvöfalt heima fyrir tímabilið 2023-24 og komst í úrslit Evrópudeildarinnar. Fyrir síðasta tímabil gekk Xhaka í raðir Sunderland. Hann átti stóran þátt í góðu gengi nýliðanna sem enduðu í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og unnu sér þátttökurétt í Evrópudeildinni á næsta tímabili. Svo gæti farið að Xhaka tæki ekki þátt í því ævintýri með Sunderland því enskir fjölmiðlar greina frá því að Alonso vilji fá hann til Chelsea. Sunderland hefur þó engan áhuga á að selja Xhaka sem er að spila á HM með svissneska landsliðinu. Hinn 33 ára Xhaka þekkir vel til í London en hann lék með Arsenal á árunum 2016-23 og var fyrirliði liðsins um tíma. Chelsea hefur aðallega keypt unga leikmenn undanfarin ár og var með yngsta liðið í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Alonso vill styrkja lið Chelsea með reynslumiklum leikmönnum sem þekkja ensku úrvalsdeildina og í vor lét einn af eigendum félagsins, Behdad Eghbali, hafa eftir sér að það þyrfti kannski að breyta innkaupastefnu sinni til að ná betri árangri. Chelsea endaði í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Enzo Maresca hætti sem stjóri liðsins í byrjun þessa árs og við starfi hans tók Liam Rosenior. Hann var látinn taka pokann sinn í apríl og Alonso var svo tilkynntur sem nýr stjóri Chelsea skömmu seinna.
Enski boltinn Chelsea FC Sunderland AFC Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sinner missir af Opna bandaríska Sport Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Fleiri fréttir United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjá meira