Sport

Haraldur Frank­lín nálgast Opna breska

Stefán Árni Pálsson skrifar
Haraldur Franklín endaði efstur og núna styttist í Opna breska. 
Haraldur Franklín endaði efstur og núna styttist í Opna breska. 

Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús hefur spilað sig inn í lokaúrtökumót Opna breska meistaramótsins sem fer fram á þriðjudaginn.

Haraldur var á meðal keppenda í undankeppni á Enville-golfvellinum í Bretlandi á mánudaginn.

Til leiks mættu 133 kylfingar sem léku um átta laus sæti í lokaúrtökumótinu. Haraldur lék frábært golf, kom í hús á sjö höggum undir pari og endaði jafn í efsta sæti mótsins. Hann opnaði hringinn á erni og var kominn sex högg undir par eftir einungis sjö holur.

Haraldur leikur í lokaúrtökumótinu á Dundonald Links-vellinum í Skotlandi, en fjögur lokaúrtökumót fara fram á sama tíma á þriðjudaginn. Gunnlaugur Árni Sveinsson leikur einnig í lokaúrtökumóti í West Lancashire á þriðjudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×