Atvinnulíf

„Ég fæ oft kaffi­bolla í rúmið og svo­leiðis stund er hei­lög!”

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, fékk góðan vin til að hjálpa sér að svara spurningu um hvaða karakter úr kvikmynd hún væri líkust. Niðurstaðan var Kate Hudson í How to Lose a Guy in 10 Days. 
Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, fékk góðan vin til að hjálpa sér að svara spurningu um hvaða karakter úr kvikmynd hún væri líkust. Niðurstaðan var Kate Hudson í How to Lose a Guy in 10 Days.  Vísir/Vilhelm

Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana? 

„Ég vakna við útvarpsklukkuna klukkan sjö og er þá yfirleitt komin fljótlega í gang. Með fjórar ungar stúlkur og sprækan hund á heimilinu fyllist dagurinn fljótt af lífi.”

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög! Síðan þarf að ræsa stelpurnar og koma mannskapnum af stað út í daginn. Morgunrútínan er svolítið erfiðari á þessum bjartasta tíma ársins, það er gaman að leika úti á kvöldin og þess vegna er farið seinna í háttinn.

Tvo morgna í viku mætum við svo saman í einkaþjálfun, ég og maðurinn minn, sem er svona okkar dekur til að ná smá tíma saman.“

Ef þú værir karakter úr frægri bíómynd, hver værir þú þá?

„Erfið spurning en ég fékk góðan vin til að velja fyrir mig, sem sagði Kate Hudson í How to Lose a Guy in 10 Days. Ég get alveg tengt við ýmislegt drepfyndið sem gengur þar á og hvað hún fer stundum „all in“. Mér finnst líka skemmtilegt hvað hún tekur hlutunum með góðum húmor og svo er auðvitað alltaf gaman þegar allt endar vel.“

Elísabet og Terrý á göngu. Elísabet segir dagatalið sitt helsta verkfæri í skipulagi. Þar skrái hún allt sem skiptir máli fyrir vinnuna og einkalífið. Það sem ekki er skráð er í hættu á að komast ekki í framkvæmd.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Það er nóg um að vera hjá mér þessa dagana, bæði í fræðslumálum og ferlavinnu. ECIT-skólinn fyrir starfsmenn er stór hluti af því, ásamt ýmsu öðru spennandi sem snýr að þróun og umbótum innan fyrirtækisins. Við erum líka rúmlega 110 manna hópur og erum afar stolt af þeim öfluga og dýrmæta mannauði sem við höfum, sem gerir starfið bæði skemmtilegt og krefjandi.

Fyrir utan vinnuna er ég með persónulega gönguáskorun í gangi þar sem ég set mér markmið um hreyfingu og útiveru. Ég fæ oft hundinn okkar, Terrý, með mér út í náttúruna. Það er bæði góð hreyfing og líka frábær leið til að hlaða batteríin.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Ég er nokkuð skipulögð – þótt ég geti stundum verið úti um allt! Dagatalið mitt er hins vegar lykilverkfæri, bæði í starfi og einkalífi, og þangað fer allt sem skiptir máli. 

Ef það kemst ekki í dagatalið er ólíklegt að það komist í framkvæmd.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Fljótlega eftir að börnin fara að sofa tek ég smá „hreinsunarhring“ á heimilinu áður en ég fer sjálf upp í rúm. Yfirleitt er ég sofnuð um ellefuleytið en síðustu vikurnar hefur það þó dregist enda hugurinn önnum kafinn við brúðkaupsundirbúning. Það er reyndar mjög gaman að gleyma sér aðeins í svoleiðis pælingum… og á Pinterest flýgur tíminn ansi hratt.“


Tengdar fréttir

Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma

Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára.

Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg!

Davíð Lúther Sigurðarson rekur nokkra veitingastaði og skemmtistaði í Reykjavík og á Selfossi þar sem hann sér einnig um miðbæinn. Davíð finnst ekkert mál að skipuleggja hátíð fyrir þúsundir manna. Ein lítil kónguló getur þó hrætt úr honum líftóruna.

Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, er einn þeirra sem er oftast vaknaður á undan klukkunni en segist þó hafa breyst frá því að vera algjör B-maður yfir í að vera blanda af A og B. Þessi dægrin er Ingvar að lesa bók um ömmu sína fyrir svefninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×