Íslenski boltinn

Guð­mundur Andri í FH eins og faðir hans forðum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Andri Tryggvason sést hér kominn í FH-treyjuna.
Guðmundur Andri Tryggvason sést hér kominn í FH-treyjuna. FH

Guðmundur Andri Tryggvason hefur yfirgefið herbúðir KR og er genginn í raðir FH.

KR-ingar kveðja framherjann á miðlum sínum og þakka honum fyrir. Samkeppnin hefur verið hörð í sóknarlínu Vesturbæinga í sumar og hann ætti að fá mun meiri spilatíma í Krikanum.

Guðmundur Andri, sem er uppalinn KR-ingur, hefur spilað 55 leiki fyrir KR og skorað í þeim 8 mörk. Hann hefur jafnframt spilað með Start í Noregi, Víkingi og Val á sínum ferli.

Guðmundur gengur nú til liðs við FH þar sem faðir hans Tryggvi Guðmundsson fór á kostum eftir að hafa komið heim úr atvinnumennsku 2005.

Tryggvi skoraði 51 deildarmark fyrir FH á sínum tíma og er sjöundi markahæsti leikmaður félagsins í efstu deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×