Fótbolti

Gætu spilað heima­leiki sína í Meistara­deildinni á heima­velli Brent­ford

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmenn Shakhtar Donetsk fagna úkraínska meistaratitlinum sem liðið vann á síðasta tímabili.
Leikmenn Shakhtar Donetsk fagna úkraínska meistaratitlinum sem liðið vann á síðasta tímabili. getty/Les Kasyanov

Þótt Brentford leiki ekki í Meistaradeild Evrópu gætu leikir í keppninni farið fram á heimavelli liðsins, Gtech Community-leikvanginum.

Brentford á nefnilega í viðræðum við Shakhtar Donetsk um að úkraínska liðið spili heimaleiki sína í Meistaradeildinni á næsta tímabili á Gtech Community-leikvanginum. Shakhtar fer beint inn í deildarkeppni Meistaradeildarinnar.

Eftir innrás Rússa í Úkraínu hefur Shakhtar verið á vergangi og liðið hefur leikið Evrópuleiki sína utan heimalandsins. Á síðasta tímabili fóru Evrópuleikir Shakhtar fram í Ljubljana í Slóveníu og Kraká í Póllandi.

Samkvæmt heimildum BBC standa viðræður milli Shakhtar og Brentford nú yfir. Talsmaður úkraínska félagsins staðfesti að nokkrir vellir á Bretlandi og í Þýskalandi kæmu til greina til að lýsa leiki þess í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Heimavöllur Brentford uppfyllir kröfur evrópska knattspyrnusambandsins varðandi leikvanga í Meistaradeildinni. Frá þeirra bæjardyrum séð er því ekkert því til fyrirstöðu að Shakhtar leiki á Gtech Community-leikvanginum í Meistaradeildinni næsta vetur.

Brentford hefur áður leigt heimavöll sinn út fyrir vináttulandsleiki og World Sevens fótboltamótið. Þá fóru fjórir leikir á EM 2021 kvenna fram á Gtech Community-leikvanginum.

Shakhtar varð úkraínskur meistari á síðasta tímabili, í sextánda sinn. Tyrkinn Arda Turan, fyrrverandi leikmaður Atlético Madrid, Barcelona og fleiri liða, er þjálfari Shakhtar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×