Golf

PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag

Andri Broddason skrifar
Aaron Rai varð PGA-meistari í ár en mótaröðin mun hafa nýtt fyrirkomulag árið 2028.
Aaron Rai varð PGA-meistari í ár en mótaröðin mun hafa nýtt fyrirkomulag árið 2028. David Cannon/Getty Images

Breytingar hafa verið samþykktar fyrir PGA-mótaröðina og verður henni skipt í tvær mismunandi mótaraðir. PGA TOUR Championship Series verður helsta mótaröðin og PGA TOUR Challenger Series fylgir með.

Í dag samþykkti stjórn PGA nýtt keppnisfyrirkomulag fyrir mótaröðina sem á að taka gildi árið 2028. Mótaröðinni verður skipt í tvennt og munu kylfingar geta fallið eða unnið sig upp milli mótaraða. Markmiðið með þessu er að gera golf meira spennandi fyrir áhorfandann ásamt því að fylgja áliti kylfinga.

PGA TOUR Championship Series verður aðalmótaröðin þar sem bestu kylfingar heims munu spila á stærstu mótunum. Mótaröðin verður byggð í kringum fjögur risamótin í golfi og er nú þegar búið að skipuleggja stóran hluta af mótunum.

Leikmenn á Championship Series þurfa að ná góðum árangri til að halda sér þar. Ef frammistaðan er ekki nógu góð getur kylfingurinn fallið niður í PGA TOUR Challenger Series þar sem kylfingar keppast um að komast í aðalkeppnina. Tuttugu kylfingar úr Challenger Series munu fá þátttökurétt á Championship Series. Hluti kylfinga fer beint upp milli mótaraða en einhverjir kylfingar úr báðum mótaröðum fara í innbyrðis keppnir þar sem efstu kylfingarnir verða í Championship Series.

Markmiðið með því að hafa mótaraðirnar samtímis er að áhorfendur geti séð skýrt hverjir geta farið upp og hverjir geta farið niður um mótaröð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×