„Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 23. júní 2026 20:02 Svana Lovísa er viðmælandi Kára Sverris í Litlu hlutunum. Skjáskot „Þetta kenndi mér að sjá hlutina betur og forgangsraða og undirbjó mig fyrir það sem koma skal, því fyrir tveimur árum síðan greinist dóttur mín með sjúkdóm sem umbreytir svolítið lífinu,“ segir vöruhönnuðurinn litaglaði Svana Lovísa sem er sömuleiðis eigandi Studio Flamingo.
Svana Lovísa er viðmælandi Kára Sverris í nýjasta þætti af Litlu hlutunum sem má sjá í spilaranum hér fyrir neðan: Umkringd skapandi konum Svana Lovísa hélt lengi vel upp vinsælu bloggi og hefur alla tíð verið listræn. Hún ólst upp á skapandi heimili og mótaðist af listrænum konum úr fjölskyldunni sem voru alltaf að hanna og skapa. „Ég er alin upp í fallegu umhverfi. Mamma og amma gerðu allt sjálfar eins og að sauma föt, yfirdekkja sófa og fleira.“ Hún segir þær ekki hafa eytt miklum peningum í fegurðina heldur sjálfar komið með sniðugar lausnir og kennt henni að finna fegurðina í litlu hlutunum. View this post on Instagram A post shared by Svana Lovísa Kristjánsdóttir (@svana.svartahvitu) Keyrði sig í kaf Það hefur margt gengið á sjá Svönu Lovísu undanfarin ár. Hún fór í kulnun og náði að byggja sig upp með aðstoð Virk. „Ég er búin að vera að finna mína vegferð í dálítið langan tíma og þetta er allt að koma. Lífið hefur svo sannarlega kennt mér að hægja á mér. Ég keyrði mig algjörlega í kaf fyrir nokkrum árum.“ Svana Lovísa segist alltaf hafa haft hundrað bolta á lofti og vanist því að hafa brjálað að gera þangað til hún gat ekki meira. „Þetta átti allt að gerast og ég er ótrúlega þakklát fyrir það í dag. Þetta kenndi mér að sjá hlutina betur og forgangsraða og undirbjó mig fyrir það sem koma skal því fyrir tveimur árum síðan greinist dóttur mín með sykursýki týpu 1 sjúkdóm sem umbreytir svolítið lífinu. Ég var búin að kúpla mig út úr þessari brjáluðu hringiðu af streitu og var komin á svo góðan stað þannig þegar þetta kemur þá fer ég ekki á kaf. Ég næ að halda öllum boltum á lofti sem var ofboðslega mikilvægt fyrir fjölskylduna.“ Neikvæðnin ókunnug tilfinning Hún segir að þetta tímabil hafi kennt henni hvað mest og þarna áttaði sig hún sömuleiðis á því hvað það skiptir miklu máli að finna gleði í hversdagsleika og starfi. „Maður heldur að hlutirnir verði alltaf nákvæmlega eins og maður vill þegar maður vill. Það er bara aldeilis ekki svoleiðis og maður þarf að gera hlutina sjálfur til að láta sína eigin drauma rætast. Það er enginn að fara að gera það nema þú. Ég var alltaf að bíða eftir rétta mómentinu en þarna fann ég svo sterkt að ég þurfti meiri gleði. Þetta var að draga mig niður, mér fannst hlutirnir bara vera erfiðir og neikvæðir og mér fannst ég allt í einu orðin neikvæð. Það er tilfinning sem ég kannast ekki við.“ View this post on Instagram A post shared by Svana Lovísa Kristjánsdóttir (@svana.svartahvitu) Svana Lovísa fór því í mikla sjálfsskoðun og opnaði í kjölfarið Studio Flamingo í Hafnarfirði. Hún er sömuleiðis gríðarlega vinsæl fyrir einstakar blómaskreytingar á viðburðum og hefur fyrirtæki hennar farið á flug. „Nú er ég markvisst að vinna að gleðinni alla daga, ég fann sjálfa mig aftur og er á mjög góðum stað.“
Litlu hlutirnir Menning Tíska og hönnun Mest lesið Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Lífið Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Lífið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Menning Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Lífið Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Menning „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Lífið Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Lífið „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Sjá meira