Slökktu á samfélagsmiðlum og treysta áfram á Ronaldo Sindri Sverrisson skrifar 21. júní 2026 13:16 Cristiano Ronaldo og Diogo Dalot glaðbeittir eftir sigur Portúgala í Þjóðadeildinni í fyrra. Getty Diogo Dalot segir að þó að milljónir Portúgala vilji að landsliðinu vegni sem best á HM í fótbolta þá séu til menn sem vilji ekki að liðið vinni. Hann segir álit liðsfélaganna á Cristiano Ronaldo ekkert hafa breyst en að það að spila í liði með Ronaldo þýði að menn þurfi að þola óeðlilega gagnrýni.
Portúgalska liðið og ekki síst hinn 41 árs gamli Ronaldo mátti sæta gagnrýni eftir óvænt 1-1 jafntefli við Austur-Kongó í fyrsta leik á HM. Liðið mætir næst Úsbekistan á þriðjudaginn og svo Kólumbíu í lokaumferð riðlakeppninnar, og þarf að gera betur í þessum leikjum til að tryggja sig inn í 32-liða úrslitin. „Það vita allir hvað Cristiano á auðvelt með að höndla gagnrýni. Með allt það sem fólk er tilbúið að dreifa þá er gagnrýni bara hluti af hans umhverfi,“ sagði Dalot samkvæmt frétt Reuters, þegar hann var spurður út í gagnrýnina á Ronaldo og portúgalska liðið. „Pressa er hluti af því að spila á svona stigi. Okkar skoðun á honum hefur ekkert breyst, hann verður alltaf tilbúinn að hjálpa og spila fyrir sína þjóð,“ sagði Dalot. Manchester United-bakvörðurinn segir leikmenn hafa ákveðið að loka á samfélagsmiðla til að láta neikvæðnina þar ekki trufla sig á HM. „Án þess að segja of mikið um einkasamtöl okkar þá ræddum við í hópnum fyrir HM um samfélagsmiðla og gagnrýni. Þegar maður er í svona liði, sérstaklega með Cristiano innanborðs, þá þarf maður að höndla óeðlilega gagnrýni. Þess vegna ákvað liðið að loka á gagnrýnina á samfélagsmiðlum. Það góða er að þetta gerðist snemma á mótinu. Því fyrr sem maður fær svona skell því auðveldara er að bæta úr því og halda áfram,“ sagði Dalot.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Enski boltinn „Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Sport „Það er skellur“ Íslenski boltinn Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Enski boltinn Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Fótbolti Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Enski boltinn Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið Íslenski boltinn Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Kjartan Kári á leiðinni í Víking Kokhraustur eftir neyðarfund Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Sjá meira