Golf

„Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnlaugur Árni hefur átt frábæran undirbúning U.S. Open nú er stóra stundin framundan seinna í dag.
Gunnlaugur Árni hefur átt frábæran undirbúning U.S. Open nú er stóra stundin framundan seinna í dag. Mynd: Golfsamband Íslands

Gunnlaugur Árni Sveinsson mun í dag opna nýjan kafla í íslenskri íþróttasögu er hann verður fyrsti íslenski kylfingurinn til að spila á U.S. Open risamótinu í golfi í karlaflokki. Gunnlaugur hefur komist hátt í háskólagolfinu í Bandaríkjunum og unnið sig í gegnum mikla erfiðleika í aðdraganda mótsins. 

Gunn­laugur er á meðal fremstu áhuga­kylfinga í heimi og með LSU háskólanum hefur hann gert sig gildandi undan­farin tvö ár. Þessi tvítugi strákur ætlar sér langt í íþróttinni og í gegnum bráða­bana á lokaúrtökumóti á dögunum tryggði hann sér sæti á U.S. Open.

Gunn­laugur hefur leik á U.S. Open klukkan 18.20 í kvöld en bein út­sending frá mótinu hefst klukkan fjögur á Sýn Sport.

Ís­lendingurinn flaug hátt strax á sínu fyrsta ári í háskólagolfinu en hefur mátt þola hindranir, erfið­leika, á sínu öðru ári.

„Hann hefur átt erfitt vor. Það hafa átt sér stað hlutir sem hann hefur enga stjórn á,“ segir Jake Amos, þjálfari Gunn­laugs í sam­tali við íþrótta­deild Sýnar. „Hann var frábær síðasta haust þegar að tíma­bilið hjá okkur byrjaði, vann til að mynda mót og endaði í topp tíu á öðru móti. Hann var á góðri siglingu en svo greip lífið inn í. Hann varð veikur, það varð frá­fall í fjöl­skyldu hans og svo meiddist hann.

Það var þá sem hann lærði mikið um sjálfan sig, upp­lifði mótlæti og sá að ekki alltaf yrði um ljúfa og full­komna siglingu að ræða. Gunn­laugur Árni í raun náði ekki sínu besta fram á vellinum fyrr í síðustu tveimur um­ferðum okkar á tíma­bilinu bara í þar síðustu viku. Það að hann hafi síðan mætt viku seinna og sýnt þessa frammistöðu sem hann sýndi í lokaúrtökumótinu sýnir okkur að hann hefur and­lega séð komist yfir alla þá erfiðu hluti sem hentu hann í vor. Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari.“

Í dag reynir hann svo fyrir sér á einu af risamótum hvers árs í golf­heiminum þar sem að allir bestu kylfingarnir verða. Gunn­laugur hefur fengið dýr­mæta reynslu í æfingar­hringjum með nokkrum af þeim bestu á borð við Scotti­e Schef­fler, Bryson DeCham­beau og Pat­rick Reed.

„Ég tel að hann muni ekki láta það koma sér úr jafn­vægi að vera í kringum þessar stjörnur. Hann verður sér til sóma. Ég sagði það við hann að láta sér ekki koma það á óvart ef ein­hverjir kylfingar á mótinu staldri við þegar að hann slær boltann. Hann er það góður.“


Tengdar fréttir

Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed

Gunnlaugur Árni Sveinsson þarf að eiga meira en góð högg til að hitta flatirnar á Shinnecock Hills, þegar hann verður fyrstur Íslendinga til að keppa á Opna bandaríska mótinu í golfi á morgun. Hann býr núna að góðum ráðum frá Patrick Reed sem þekkir það að vinna risamót.

„Ís­land ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“

Gunn­laugur Árni Sveins­son er klár í stóra sviðið sem U.S. Open risamótið í golfi er. Þetta segir þjálfari hans við LSU háskólann í Bandaríkjunum. Gunn­laugur sé með nálgun at­vinnu­manns og geti nú sýnt heiminum hversu góður kylfingur hann sé.

At­hyglin mun meiri en Gunn­laugur með báða fætur á jörðinni

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson fær nú umtalsvert meiri athygli frá fjölmiðlum og viðskiptatengdum aðilum nú þegar dregur nær fyrsta risamóti hans á ferlinum. Umboðsmaður Gunnlaugs segir hann með báða fætur á jörðinni.

Gunnlaugur æfði óvænt með DeChambeau og Reed

Gunnlaugur Árni Sveinsson fær frábæran undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Fyrir æfingahringinn með besta kylfingi heims fékk hann óvænt að æfa með Bryson DeChambeu og Patrick Reed.

Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrú­lega skemmti­legt að upp­lifa“

Gunnlaugur Árni Sveinsson varð á dögunum fyrsti íslenski kylfingurinn til að tryggja sig inn á US Open risamótið í karlaflokki. Kappinn fann á sér á keppnisdeginum að þetta yrði hans dagur, mótlæti braut hann ekki, heldur efldist hann bara við það. Mót með þeim bestu í heimi bíður.

Stoltir foreldrar: Gunn­laugur „mani­festaði“ birtu eftir erfitt vor

„Þetta er svo ofsalega stórt og ég held að maður átti sig ekki alveg á þessu fyrr en mótið rennur upp eftir rúma viku,“ segir Sveinn Kristinn Ögmundsson, pabbi Gunnlaugs Árna sem fyrstur íslenskra karla vann sig inn á Opna bandaríska mótið í golfi. Foreldrar Gunnlaugs Árna mættu í Bítið á Bylgjunni, eðlilega að rifna úr stolti.

Risa af­rek Gunn­laugs og saman­burður við þá bestu áhuga­verður

Gunn­laugur Árni Sveins­son tryggði sér í fyrradag, fyrstur Ís­lendinga, sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í karla­flokki eftir bráða­bana á úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Risastór tíðindi sem koma þó ekki einum helsta golfsér­fræðingi landsins á óvart. Þetta sé ekki endastöð hjá Gunn­laugi, bara byrjunin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×