Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Andri Broddason skrifar 18. júní 2026 07:03 Kylfingar líkt og Rory Mcllroy eru orðnir of högglangir. Dylan Buell/Getty Images Frestað hefur verið áformum um að hægja á golfboltum atvinnukylfinga. Verið er að reyna að finna aðrar lausnir til þess að takmarka högglengd atvinnukylfinga þar sem að hægja á boltanum er ekki nóg. Búist er við að þær reglur verði settar árið 2030.
Golfíþróttin hefur þróast umtalsvert á síðustu árum og hefur þróun kylfa og bolta gert það að verkum að kylfingar slá lengra nú en nokkru sinni áður. Þar eru sérstaklega teknir fram Scottie Scheffler, Rory Mcllroy og Bryson DeChambeau. Bandaríska golfsambandið ætlaði að setja nýjar reglur um golfbolta árið 2028. Þar áttu golfboltarnir ekki að geta flogið jafn langt og þeir gera nú. Þrátt fyrir að það sé búið að hætta við að hægja á boltanum er verið að reyna að finna aðrar leiðir til að draga úr högglengd í staðinn. Ástæðan fyrir þessum reglubreytingum er vegna þess að margir sögufrægir vellir eru ekki jafn erfiðir og þeir voru. Par fjögur holur sem voru með allskonar hættum á brautinni eru nú ekkert vandamál fyrir atvinnukylfinga. Upphafshöggið er sett rétt hjá flötinni og svo vippa þeir þægilega inn á flötina. Sömuleoðis eru flestir kylfingar sem komast auðveldlega inn á flöt í tveimur höggum á holu sem er par fimm. Eitt sem hefur verið gert til að sporna við þessu er að búa til nýja teiga aftar á vellinum fyrir atvinnukylfingana. Það er ekki fullkomin lausn þar sem það hægir á leikhraða vegna þess að kylfingar þurfa að ganga lengri vegalengdir.
Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira