Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna Sindri Sverrisson skrifar 15. júní 2026 07:05 Alexander Isak og Mattias Svanberg fögnuðu vel eftir að sá síðarnefndi skoraði úr fyrstu snertingu sinni í leiknum. Getty/Alejandro Espino Eftir að hafa farið bakdyraleið inn á HM og komist þangað með herkjum þá hófu Svíar mótið með miklum glæsibrag í nótt þegar þeir unnu 5-1 sigur á Túnis í F-riðli. Fílabeinsströndin vann dísætan 1-0 sigur gegn Ekvador í E-riðli.
Stjörnuframherjarnir úr ensku úrvalsdeildinni, Alexander Isak og Viktor Gyökeres, byrjuðu leikinn saman í fremstu víglínu Svía og fóru á kostum í leiknum. Það gerði einnig Yasin Ayari, hinn 22 ára miðjumaður Brighton, sem kom Svíum yfir strax á sjöundu mínútu með þrumuskoti. Isak tvöfaldaði forskotið á 30. mínútu með hnitmiðuðu skoti eftir skyndisókn en Omar Rekik gaf Túnis von fyrir hálfleik, með skalla eftir fyrirgjöf frá Hannibal Mejbri. Sú von dofnaði þó aftur þegar Isak stal boltanum af varnarmanni Túnis og kom honum á Gyökeres sem skoraði næsta auðveldlega. Skoraði úr fyrstu snertingu Á 84. mínútu skoraði svo varamaðurinn Mattias Svanberg, aðeins um 18 sekúndum eftir að hafa komið inn á og úr sinni fyrstu snertingu. Markið var í fyrstu dæmt af vegna rangstöðu en Isak hafði snert boltann í aðdragandanum og búið til nýja stöðu sem ekki olli rangstöðu. Seint í uppbótartíma skoraði svo Ayari sitt annað mark með góðu skoti og Svíar hefja því HM af miklum krafti. Þeir eru efstir í F-riðli eftir að Japan og Holland gerðu 2-2 jafntefli í fyrsta leik riðilsins. Amad Diallo fagnaði vel eftir markið dýrmæta gegn Ekvador.Getty/Ezra Shaw Diallo kom inn á og skoraði Fjörið var öllu minna í E-riðlinum hjá Fílabeinsströndinni og hinu sterka varnarliði Ekvadora. Þar var staðan markalaus allt fram á 90. mínútu þegar Manchester United-maðurinn Amad Diallo, sem komið hafði inn á sem varamaður á 56. mínútu, skoraði eftir magnaðan sprett Wilfried Singo fram völlinn og tryggði „Fílunum“ sigur. Fílabeinsströndin og Þýskaland eru því bæði með þrjú stig en Þjóðverjar höfðu unnið 7-1 stórsigur gegn Curacao í fyrsta leik riðilsins.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Enski boltinn „Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Sport „Það er skellur“ Íslenski boltinn Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Enski boltinn Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Fótbolti Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Enski boltinn Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Fótbolti Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Kjartan Kári á leiðinni í Víking Kokhraustur eftir neyðarfund Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Sjá meira