Hulda Clara vann í Tékklandi Andri Broddason skrifar 14. júní 2026 14:13 Hulda Clara Gestsdóttir vann sitt fyrsta mót á LET Acess mótaröðinni eftir aðeins að taka þátt í aðeins fjórum mótum Golf.is Hulda Clara Gestsdóttir vann RB Czech Ladies Challenge mótið á LET Access mótaröðinni í dag. Þetta er fjórða mót Huldu Clöru á mótaröðinni en hún er aðeins annar íslenski kylfingurinn til að vinna mót á mótaröðinni.
Mótið er haldið í Tékklandi og er leikið á Panorama Golf Resort vellinum. Hún lék þrjá hringi og spilaði þá alla á pari vallarins sem eru 72 högg. Hulda Clara var gríðarlega stöðug í spilamennsku sinni þar sem hún fékk aðeins þrjá skolla og þrjá fugla yfir alla þrjá hringina. Hinar holurnar fór hún á pari. Fyrir sigurinn var Hulda Clara í 24. sæti mótaraðarinnar en eftir þetta mót má búast við að hún muni vera ofarlega á listanum. Þetta er fyrsta sumarið hennar Huldu sem atvinnukylfingur og byrjar það vægast sagt vel. Ragnhildur Kristinsdóttir var fyrsti Íslendingurinn til að vinna á LET Acess mótaröðinni en hún og Hulda Clara voru jafnar í sjöunda sæti eftir fyrsta hring mótsins. Ragnhildur endaði mótið í 34. sæti en Andrea Bergsdóttir endaði í 21. sæti. Kylfingurinn í öðru sæti mótsins var Natalie Armbruester frá Sviss en það var aðeins eitt högg sem skildi hana og Huldu að. Þetta var því sigur með minnsta mun og mikið afrek hjá Huldu.
Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira