Slot rekinn frá Liverpool Aron Guðmundsson skrifar 30. maí 2026 11:20 Dagar Slot sem knattspyrnustjóri Liverpool virðast vera taldir. Vísir/getty Arne Slot hefur verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Liverpool. Þetta fullyrti ítalski blaðamaðurinn, Fabrizio Romano, fyrstur manna í færslu á samfélagsmiðlinum X. Liverpool hefur núna staðfest tíðindin með yfirlýsingu.
Liverpool FC can confirm Arne Slot is to depart his role as head coach with immediate effect and that the process to appoint a successor is under way.He leaves with a Premier League title to his name and our deepest gratitude and appreciation.— Liverpool FC (@LFC) May 30, 2026 „Liverpool getur staðfest að Arne Slot hefur verið leystur undan starfi sínu sem knattspyrnustjóri Liverpool. Leit að nýjum knattspyrnustjóra er þegar hafin,“ segir í fréttatilkynningu frá Liverpool. Er Slot þakkað fyrir góð störf. Hann hafi með sínu framlagi haft mikil og góð áhrif á félagið. „Á sama tíma er það sameiginleg niðurstaða okkar að breytinga sé þörf svo að félagið geti haldið áfram að sækja fram. Þetta er okkur ekki léttvæg ákvörðun.“ Slot þakkar fyrir sig: „Þetta hefur verið frábært ferðalag með ykkur í Liverpool. Ég er svo þakklátur fyrir það að við höfum unnið ensku úrvalsdeildina saman á sínum tíma.“ 🚨 EXCL: Arne Slot says goodbye to Liverpool fans.“It’s been an amazing ride together with Liverpool, I am so grateful that we were able to win the league last season”. ❤️ pic.twitter.com/AONbxY9m38— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 30, 2026 Slot tók við stjórnartaumunum hjá Liverpool af Jurgen Klopp fyrir tímabilið 2024/25 og gerði liðið að Englandsmeisturum á sínu fyrsta tímabili. Gengi liðsins á nýafstöðnu tímabili stóðst hins vegar ekki væntingar. Engir titlar skiluðu sér í hús þrátt fyrir að keyptir hafi verið inn leikmenn fyrir stórar fjárhæðir og var gengi liðsins erfitt um langt skeið í ensku úrvalsdeildinni. Svo fór að Liverpool endaði í 5.sæti ensku úrvalsdeildarinnar og tryggði sér Meistaradeildarsæti í lokaumferðinni. Liðið halaði aðeins inn 60 stigum á nýafstöðnu tímabili sem er það lægsta hjá liðinu í yfir áratug. Samkvæmt Romano er Andoni Iraola, stjóri sem gerði magnaða hluti með lið Bournemouth, sá sem þykir líklegastur til þess að taka við Liverpool. Mikil óánægja hafði verið uppi með störf Slot upp á síðkastið og hafði kastast í kekki milli hans og Liverpool goðsagnarinnar Mohamed Salah sem yfirgaf Liverpool eftir nýafstaðið tímabil. Salah talaði um að Liverpool þyrfti að byrja að spila aftur „þungarokks sóknarbolta“ og átti þá við það hvernig liðið spilaði undir stjórn Jurgen Klopp, áður en Slot tók við. Klárt skot frá Egyptanum á Hollendinginn. Áður en hann tók við Liverpool hafði Slot verið þjálfari í Hollandi hjá liðum á borð við Cambuur, AZ Alkmaar og síðast Feyenoord þar sem að liðið varð hollenskur meistari undir stjórn Slot. Hollendingurinn virtist fullviss um að hann yrði áfram stjóri Liverpool komandi inn í næsta tímabil og höfðu borist af því sögusagnir að hróflað yrði við þjálfarateymi hans hjá félaginu. Tíðindin koma því nokkuð á óvart núna í morgunsárið en líkt og segir í yfirslýsingu Liverpool töldu forráðamenn félagsins að breytinga væri þörf svo Liverpool gæti sótt fram á ný.
Liverpool FC Mest lesið Hausverkur fyrir Iraola Enski boltinn „Það fyrsta sem sést er rassinn á mér“ Sport Uppgjörið: KA - Þór 0-0 | Steindauður norðanslagur Íslenski boltinn Bjóða hverjum sem vinnur Littler 84 milljónir Sport Rosenborgarar Freys óstöðvandi Fótbolti „Góðir tímar framundan“ Íslenski boltinn „Hefði nú verið betra að vera með tvo sigra“ Íslenski boltinn Mbappé sár eftir HM Fótbolti „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Íslenski boltinn Littler rústaði metum og varði titilinn Sport Fleiri fréttir Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Sjá meira