„Ef vængirnir eru úr vaxi þá bráðna þeir“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. maí 2026 22:13 Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, trúði varla sínum eigin augum á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Guðmundur Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var auðmjúkur í svörum eftir 6-3 tap liðsins gegn hans gömlu lærisveinum í Breiðablik í Bestu-deild karla í kvöld. „
Ég held að þetta sé kennslustund í auðmýkt,“ sagði Óskar í leikslok. „Ég held að við verðum bara að taka þessu þannig. Kannski flugu menn of nálægt sólinni og þá er hætta á að menn hrapi. Ef vængirnir eru úr vaxi þá bráðna þeir og við föllum til jarðar. Ég held að það sé skynsamlegasta greiningin rétt eftir leik,“ bætti Óskar við og hélt áfram. „Við köstum þessum leik svolítið frá okkur í fyrri hálfleik, en varnarleikurinn allann leikinn var ekki nógu góður. Þetta var bara lélegur leikur hjá okkur. Það er raunverulega ekkert meira um það að segja. Sem betur fer fáum við tækifæri á þriðjudaginn til að svara fyrir okkur. Það hefði verið verra ef við hefðum þurft að bíða í tíu daga eftir næsta leik. En við verðum eiginlega bara að kasta þessum leik í ruslið og setjum fókus á Val.“ Nánast öll mörk Breiðabliks í kvöld voru keimlík þar sem heimamenn komust upp annan hvorn kantinn og boltinn svo dreginn út í teig þar sem laus maður mætti og skilaði honum í netið. „Við hefðum mögulega átt að falla fyrr þegar maður án boltapressu er að senda hann inn fyrir. Við hefðum þurft að elta mennina okkar og svo hefðum við þurft að pikka upp mennina í teignum,“ sagði Óskar. „En ég ætla ekkert að taka af Breiðablik. Þeir voru mjög góðir í þessum leik og hann var vel uppsettur hjá þeim. Þeir voru aggressívari og þetta var svona svipað og á móti Stjörnunni. Annað liðið hafði helling að sanna og öllu að tapa á meðan við þurfum kannski að læra það að vera í þessari toppbaráttu. Það er ekkert nóg að komast nálægt toppnum. Það þarf að halda sér þar og ef þú ætlar að halda þér þar þá þurfum að vera klárir í hvern einasta leik. Við búum ekki við þann lúxus að geta valið okkur leiki. Þetta var bara einn af þessum leikjum og ég ætla að vona að við allir sem komum að KR-liðinu höfum fengið kennslustund í auðmýkt.“ Breiðablik, eins og önnur lið í undanförnum leikjum, mætti KR í maður á mann pressu í kvöld. Í síðustu þremur leikjum hafa KR-ingar tapað tveimur og gert eitt jafntefli, en Óskar vildi ekkert segja til um það hvort lið væru búin að finna uppskriftina að velgengni gegn KR. „Það verður að koma í ljós,“ sagði Óskar einfaldlega. Varnarleikurinn vandamál Þrátt fyrir að Óskar hafi sjálfur talað um það að honum finnist hann ekki þurfa að hafa of miklar áhyggjur af varnarleiknum strax hljóta menn að spyrja sig hvort ekki þurfi að fara að stoppa í götin. Sjálfur sagði hann á dögunum að KR gæti treyst á að skora 3-5 mörk í leik, en sú hefur ekki verið raunin í síðustu þremur leikjum, að þessum meðtöldum. „Auðvitað þarf maður kannski að kíkja aðeins á samsetninguna á vörninni og fleira slíkt,“ sagði Óskar. „Varnarleikur er samt ekki bara þriggja manna varnarlína. Þetta er út um allan völl. Við erum í maður á mann og ef einn maður er ekki að verjast þá hefur það afleiðingar. Þetta er einskorðast ekki við varnarlínuna þó að hún hafi kannski litið illa út í þessum mörkum og færum sem þeir fá. En auðvitað þarf maður að hugsa um það og það skiptir ekki máli hvort það er eftir sigur- eða tapleiki. Þú þarft alltaf að hugsa um hver er besta blandan, hverjir passa best saman og hvernig besti takturinn í liðinu. Eftir svona leik verður maður líka að líta í eigin barm og hugsa hvort maður hafi sett liðið rétt saman til að spila á móti þessu Blikaliði. Ég hélt það fyrir leikinn, en að öllum líkindum var það ekki þannig,“ sagði Óskar að lokum.
Íslenski boltinn Besta deild karla Breiðablik KR Mest lesið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Ken Bates látinn Enski boltinn Fleiri fréttir Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjá meira