Bomba frá Salah: „Liverpool þarf að endurheimta heví metal boltann“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. maí 2026 17:16 Mohamed Salah og félagar í Liverpool eru í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. getty/Catherine Ivill Eftir tapið fyrir Aston Villa, 4-2, stakk Mohamed Salah niður penna á Instagram og sagði að Liverpool yrði að endurheimta einkenni sitt, heví metal fótboltann sem það spilaði undir stjórn Jürgens Klopp.
Liverpool laut í lægra haldi fyrir Villa á Villa Park í gær, 4-2. Með sigrinum tryggði Villa sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili en Liverpool er ekki enn búið að geirnegla Meistaradeildarsætið. Salah lék síðustu sextán mínúturnar í gær, í sínum næstsíðasta leik fyrir Liverpool. Hann yfirgefur félagið eftir tímabilið. Egyptinn er greinilega ekki sáttur við stöðu mála hjá Liverpool eins og kom fram í færslu hans á Instagram. „Ég hef upplifað þetta félag fara frá efasemdum í að trúa og frá því að trúa í að verða meistarar. Það krafðist mikillar vinnu og ég gerði alltaf allt sem ég gat til að hjálpa félaginu að komast þangað. Ekkert fyllir mig meira stolti,“ skrifaði Salah. „Það var mjög sársaukafullt að sjá okkur tapa enn einum leiknum á þessu tímabili og ekki það sem stuðningsmenn okkar eiga skilið. Ég vil að Liverpool verði aftur heví metal sóknarliðið sem andstæðingar þess óttast og lið sem vinnur titla. Það er fótboltinn sem ég kann að spila og við þurfum að endurheimta þessi einkenni og halda þeim. Það á að vera óumdeilanlegt og allir sem ganga í raðir félagsins ættu að aðlagast því.“ View this post on Instagram A post shared by Mohamed Salah (@mosalah) Salah vill kveðja Liverpool með því að koma Rauða hernum í Meistaradeildina. „Að vinna leiki hér og þar er ekki það sem Liverpool á að vera. Öll lið vinna leiki. Liverpool mun alltaf skipta mig og fjölskyldu mína miklu máli. Ég vil sjá liðinu vegna vel eftir að ég er farinn,“ skrifaði Salah. „Eins og ég hef alltaf sagt er lágmarkskrafa að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili og ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að það gerist.“ Salah þyrlaði upp ryki með ummælum sínum eftir 3-3 jafntefli við Leeds United í desember á síðasta ári. Þar sagðist hann hafa verið gerður að blóraböggli fyrir slæmu gengi Liverpool og að molnað hefði undan sambandi hans og Arnes Slot, knattspyrnustjóra liðsins. Í mars var greint frá því að Salah myndi kveðja Liverpool eftir þetta tímabil. Hann hefur leikið með liðinu síðan 2017 og er þriðji markahæsti leikmaður í sögu þess. Lokaleikur Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu er gegn Brentford á Anfield sunnudaginn 24. maí.
Enski boltinn Liverpool FC Tengdar fréttir Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Aston Villa tryggði sér í kvöld sæti í Meistaradeild Evrópu, í annað sinn á þremur árum, með frábærum 4-2 sigri á heimavelli gegn Liverpool í slag liðanna í 4. og 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. 15. maí 2026 20:35 Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjá meira
Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Aston Villa tryggði sér í kvöld sæti í Meistaradeild Evrópu, í annað sinn á þremur árum, með frábærum 4-2 sigri á heimavelli gegn Liverpool í slag liðanna í 4. og 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. 15. maí 2026 20:35