Geltandi Britney sögð hafa ógnað gestum veitingastaðar Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. maí 2026 10:37 Britney Spears er ein frægasta poppstjarna sögunnar og hefur gengið í gegnum miklar andlegar hremmingar á ævinni. Getty Talsmaður Britney Spears segir lýsingar í götupressunni, um að poppstjarnan hafi á miðvikudagskvöld ógnað veitingastaðargestum með hnífi, öskrað og gelt, vera verulega ýktar. Hið rétta sé að Britney hafi þurft að skera hamborgara sinn til helminga og sagt borðfélögum leikræna sögu af hundi sínum.
Dægurmálamiðillinn TMZ greindi frá því á fimmtudag að Britney Spears hafi farið út að borða með tveimur öðrum á veitingastaðnum Blue Dog Tavern í Sherman Oaks í Los Angeles á miðvikudagskvöld. Hafði miðillinn eftir sjónarvottum á staðnum að Spears hafi byrjað að „öskra“ og „gelta“ og sagði einn þeirra að tónlistarkonan hafi gengið framhjá borði hans með hníf í hendinni. Á miðvikudagskvöldið hafði skemmtanabransablaðamaðurinn Jeff Sneider sömuleiðis birt færslu á X þar sem hann sagðist hafa setið við hliðina á Britney á veitingastaðnum og lýsti því sem „svakalegri upplifun“. „Hún er nýfarin og allir á veitingastaðnum sneru sér við og byrjuðu að tala um hana. KLIKKUÐ kvöldverðarupplifun. Einn gestanna óttaðist um líf sitt. Þetta er ekki grín...“ skrifaði Sneider í annarri færslu sama kvöld. Talsmaður Spears brást í gær við umfjölluninni með tilkynningu til fjölmiðla þar sem sagði að lýsingar í fjölmiðlum væru „ekki í neinu samræmi við“ það sem átti sér raunverulega stað. „Britney átti rólegan kvöldverð með aðstoðarmanni sínum og öryggisverði,“ sagði í tilkynningunni. „Hún var einfaldlega að segja frá því hvernig hundurinn hennar hafði gelt á nágrannana. Á engum tímapunkti ógnaði hún neinum með hnífi. Hún var að skera hamborgarann sinn í tvennt. Þessar stöðugu árásir á allt sem hún gerir eru nákvæmlega það sama og gerðist fyrir tuttugu árum þegar fjölmiðlar reyndu að draga upp mynd af Britney sem slæmri manneskju. Þetta er fáránlegt og verður að stoppa núna,“ sagði jafnframt í tilkynningunni. Britney hefur verið í dálitlum vandræðum upp á síðkastið. Í byrjun mars var tónlistarkonan tekin ölvuð undir stýri og þurfti að sitja í fangaklefa yfir nótt. Um miðjan apríl bárust fréttir af því að hún væri komin í meðferð og hún var svo ákærð fyrir ölvunarakstur skömmu síðar. Spears játaði sekt sína í málinu og hlaut eins árs skilorðsbundinn dóm, eins dags fangelsisvist sem hún hafði þegar afplánað og um 70 þúsund króna sekt. Þá var henni einnig gert að mæta vikulega til sálfræðings, tvisvar í mánuði til geðlæknis og sitja námskeið um ölvunarakstur.
Sjálfræðisbarátta Britney Spears Bandaríkin Hollywood Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Fleiri fréttir Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Sjá meira