Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. maí 2026 16:40 Stuðningsmenn Southampton vita ekki hvort þeir fái að fara á Wembley eða hvenær. Warren Little/Getty Images Það kemur til greina að fresta úrslitaleik ensku Championship deildarinnar meðan komist er til botns í „Spygate“ málinu svokallaða, þar sem þjálfari á vegum Southampton er sakaður um njósnir.
Southampton er ákært af ensku deildasamtökunum fyrir ólöglegar njósnir í aðdraganda undanúrslitaleiks liðsins við Middlesbrough. Yfirheyrsla á vegum óháðrar aganefndar mun fara fram þriðjudaginn 19. maí eða fyrr. Niðurstaða mun liggja fyrir í kjölfar þess en þá munu félögin geta áfrýjað. Óvíst er því hvort takist að leysa úr málinu áður en úrslitaleikur Southampton og Hull City fer fram sunnudaginn 23. maí. Ensku deildasamtökin segjast ganga út frá því að úrslitaleikurinn muni fara fram á settum tíma en vara stuðningsmenn samt við því að tilfærsla gæti gerst. Þá vakna fleiri spurningar um hvenær úrslitaleikurinn gæti farið fram því Wembley leikvangurinn er bókaður næstu tvær helgar á eftir. Ef Southampton er dæmt sekt um njósnir eru engin fordæmi fyrir því. Félaginu gæti verið refsað með stigafrádrætti, sekt eða í versta falli verið hent út úr umspilinu. Niðurstöðu aganefndar verður hægt að áfrýja en niðurstaða áfrýjunarnefndar verður endanleg. Málið verður ekki tekið fyrir af gerðardómi alþjóða íþróttadómstólsins. Búist er við því að Southampton muni áfrýja ef félagið er dæmt og sömuleiðis er búist við áfrýjun frá Middlesbrough ef Southampton er fundið saklaust. Á meðan veit Hull City ekki hvoru liðinu það mun mæta í úrslitaleiknum. „Við einbeitum okkur bara að úrslitaleiknum og undirbúum okkur fyrir að mæta Southampton þann 23. maí þar til annað kemur í ljós,“ sagði Jared Dublin þjálfari Hull.
Enski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Sjá meira