„Ekkert grín heldur algjörlega fáránlegt“ Sindri Sverrisson skrifar 6. maí 2026 14:16 Hermann Hreiðarsson fór yfir strikið að mati Arons, eftir leik Vals og KR á Hlíðarenda á laugardagskvöld. Samsett/Diego/Anton Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, gefur lítið fyrir skýringar Hermanns Hreiðarssonar, þjálfara Vals, á því sem á gekk í leikmannagöngunum á Hlíðarenda á laugardagskvöld.
Hermann var sakaður um að hafa kýlt Ástbjörn Þórðarson, leikmann KR, í þindina í leikmannagöngunum eftir að hafa horft upp á sitt lið steinliggja, 4-1. Sjálfur sagði Hermann í viðtali við Fótbolta.net að búið væri að gera úlfalda úr mýflugu með fréttum af málinu. Um góðlátlegt grín hefði verið að ræða og alls ekkert ofbeldi. Aron var í viðtali við Kristján Óla Sigurðsson í Þungavigtinni í dag spurður út í lætin á laugardagskvöld, og hvort það hefði verið „einhver alvöru hiti“ í göngunum? „Já, það var það. Ég efa það að einhver sem tapar fótboltaleik 4-1 komi í einhverju góðu gríni og kýli menn létt, ef þeir ætla að kýla mann yfirhöfuð. Það var ekkert grín þarna, þetta var algjörlega fáránlegt,“ sagði Aron en virtist þó vilja gæta orða sinna. Hermann sagðist á sunnudaginn búinn að ræða við Ástbjörn og að málinu væri lokið. „Ef einhverjir eru ósáttir þá bara biðst maður afsökunar á að hafa gert eitthvað klaufalega sem átti að vera góðlátlegt grín,“ sagði Hermann. „Það er búið að grafa þetta sögðu þeir en það hefði mátt sleppa þessu,“ sagði Aron í dag. KR og Valur eru vitaskuld fornir fjendur og leikurinn og lætin á laugardaginn gerðu ekkert til að draga úr rígnum. Skammt er í næsta leik þeirra því þau mætast aftur í Vesturbænum eftir 20 daga, eða þriðjudagskvöldið 26. maí.
Besta deild karla Valur KR Mest lesið Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Íslenski boltinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Fótbolti Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Fótbolti Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Sport Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Körfubolti „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld „Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ „Búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku“ Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 1-3 | Langþráður sigur Brazell „Vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag“ „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Fannst ÍBV brjóta fyrir vítadóminn „Jákvætt að tengja saman tvo sigra“ „Ákvörðun dómarans verðskuldar ekki komment“ Uppgjörið: KA - FH 0-1 | Úr fallsæti og auka á þjáningar norðanmanna Uppgjörið: Víkingur - ÍBV 2-2 | Annað misstig meistaranna Uppgjörið: ÍA - Þór 2-0 | Þrír í röð án taps hjá ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 1-0 | Stjarnan heldur áfram að þoka sér upp töfluna Árni gekk í það heilaga og fékk frí Von Völsungs lifir góðu lífi Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Framherjaleit Breiðabliks lokið Þrótti mistókst að fara á toppinn Erlingur Agnars í FH Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Sjá meira