Golf

DeCham­beau mun ein­beita sér að Youtu­be ef LIV verður að engu

Aron Guðmundsson skrifar
Bryson DeChambeau eftir sigur á US Open árið 2024
Bryson DeChambeau eftir sigur á US Open árið 2024 Vísir/Getty

Bryson DeCham­beau, einn fremsti kylfingur í heimi, segist munu ætla ein­beita sér að YouTu­be rás sinni fram yfir endur­komu á PGA mótaröðina ef LIV mótaröðin leggst af.

Í síðustu viku greindi Ríkissjóður Sádi-Arabíu (PIF) frá þeirri ákvörðun sinni að hætta fjármagna LIV mótaröðina í golfi og um leið sagði Yasir Al-Rumayyan, formaður ríkissjóðsins og stofnandi LIV, skilið við mótaröðina. 

LIV mótaröðin var sett á laggirnar árið 2021 og fóru margir af helstu kylfingum heims yfir til LIV frá PGA. 

Nú þegar óvissa er uppi um framtíð LIV beinist spurningin að því hvað kylfingar mótaraðarinnar gera, hvort þeir reyni jafnvel að komast aftur inn á PGA mótaröðina.

Notið gífurlegra vinsælda

Spánverjinn Jon Rahm hefur náð samkomulagi við DP World Tour um að snúa aftur á þá mótaröð en Bryson DeChambeau, sem hefur slegið í gegn með YouTube rás sinni, hyggst ætla að stækka þann vettvang sinn fari svo að LIV verði að engu. 

„Frá mínu sjónarhorni væri ég til í stækka YouTube rás mína þrefalt eða jafnvel meira,“ lét DeChambeau hafa eftir sér í viðtali við ESPN en YouTube rás hans er með um 2.6 milljónir fylgjenda. „Ég myndi svo taka þátt á mótum þar sem menn myndu virkilega vilja hafa mig á meðal keppenda.“

Kylfingar sem myndu íhuga það að reyna komast aftur yfir á PGA mótaröðina gætu átt yfir höfði sér refsingar og sektir. DeChambeau segir það óheppilegt fyrir mótaröðina.

„Svona í ljósi þess hvað ég gæti gert fyrir mótaröðina.“

YouTube rás DeChambeau snýr eingöngu að golfi. Þar hefur hann spilað með þekktum mönnum á borð við Donald Trump Bandaríkjaforseta, Steph Curry, Kevin Hart og Jon Daly og svo mætti lengi telja. Þá tekst hann á við áskoranir og hefur notið mikilla vinsælda til þessa. 

Núverandi samningur DeChambeau við LIV mótaröðina rennur sitt skeið eftir yfirstandandi tímabil og hafði hann búist við því að skrifa undir nýjan risasamning við mótaröðina áður en framtíð LIV tók á sig þennan stóra skell.  

PGA mótaröðin opnaði á endurkomu kylfinga frá LIV fyrr á þessu ári og var Brooks Koepka einn þeirra sem stökk á tækifærið en Bryson DeChambeau hafnaði því boði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×