Hittu sjálfan Jacquemus í New York Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 4. maí 2026 14:54 Rándýrar sjálfsmyndir í bígerð hjá Birtu Líf og Sunnevu með hönnuðinum Jacquemus. Instagram Teboðsskvísurnar og hlaðvarpsstýrurnar Sunneva Einarsdóttir og Birta Líf Ólafsdóttir eru staddar í New York með Hildi Sif Hauksdóttur og Páli Orra Pálssyni í sannkallaðri pæjuferð. Skvísurnar tóku upp hlaðvarpsþátt í stórborginni, djömmuðu á flöskuborði á skemmtistaðnum Marquee í New York og hittu uppáhalds tískuhönnuðinn þeirra, Simon Porte Jacquemus.
Sunneva og Birta Líf eru bestu vinkonur og hafa stýrt hlaðvarpinu Teboðið í áraraðir. Sunneva hefur sömuleiðis verið í raunveruleikaþáttunum LXS ásamt Hildi Sif, Birgittu Líf og fleiri skvísum. Sunneva og Birta eru duglegar að ferðast og skvísast um allan heim. Þær tóku nýverið upp þátt í Mílanó og voru stuttu síðar mættar í stóra eplið. Sunneva og Birta alltaf smart skelltu sér í dinner, fóru á flöskuborð á Marquee næturklúbbnum, tóku upp Teboðshlapvarp og hittu uppáhalds tískuhönnuðinn í New York.Instagram Stelpurnar hafa löngum elskað franska tískumerkið Jacquemus sem Simon Porte Jacquemus stofnaði árið 2009, þá einungis nítján ára gamall. Merkið hefur vaxið gríðarlega mikið á undanförnum árum og er hvað þekktast fyrir einstakar handtöskur sem eru gjarnan í skemmtilegum litum. Sunneva Einars hefur verið sérstaklega áberandi með bleika slíka tösku uppi á arminum á hinum ýmsu viðburðum. Því var mikill draumur þegar stelpurnar rákust á kappann í Soho hverfinu í New York fyrir utan Jacquemus verslunina þar. „GAHHHHH vorum að hitta the one and only Jacquemus. Er ekki búin að jafna mig,“ skrifar Sunneva í Instagram hringrásina hjá sér og bætir við að hann sé alvöru goðsögn. Birta Líf, Jacquemus og Sunneva Einars.Instagram Sunneva var viðmælandi í þáttunum Tískutal hér á Vísi í fyrra þar sem hún sýndi meðal annars uppáhalds töskurnar sínar frá Jacquemus:
Íslendingar erlendis Tíska og hönnun Bandaríkin Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Fleiri fréttir „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira