Handbolti

Thea fer í rúmenskt fé­lag með ís­lenska tengingu

Sindri Sverrisson skrifar
Thea Imani Sturludóttir er á leið út í atvinnumennsku til Rúmeníu.
Thea Imani Sturludóttir er á leið út í atvinnumennsku til Rúmeníu. Vísir/Anton Brink

Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir heldur út í atvinnumennsku í sumar, að afloknu úrslitaeinvíginu með Val gegn ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn.

Thea hefur verið einn allra besti leikmaður Olís-deildarinnar um árabil en hún kom til Vals árið 2021 frá Aarhus United í Danmörku eftir að hafa einnig spilað í Noregi. Hún er hins vegar uppalin hjá Fylki.

Nú er orðið ljóst að hún mun halda ferlinum áfram ytra eftir þetta tímabil, nánar tiltekið með SCM Craiova í Rúmeníu. Þetta tilkynnti Valur í dag, á milli leiks eitt og tvö við ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn en Valskonur unnu fyrsta leik á laugardaginn.

Lið Craiova er með ákveðna Íslandstengingu því aðstoðarþjálfari liðsins er Florentina Stanciu, fyrrverandi markvörður bæði rúmenska og íslenska landsliðsins, sem um árabil varði mark Stjörnunnar og einnig ÍBV hér á landi.

Í tilkynningu Vals er Theu þakkað fyrir hennar frábæra framlag og eftirminnilegar stundir, þar sem Evrópubikarmeistaratitillinn í fyrra stendur eflaust upp úr, og henni óskað alls hins besta í Rúmeníu.

Craiova er sem stendur í 9. sæti af 12 liðum í rúmensku úrvalsdeildinni, þegar tvær umferðir eru eftir, og á ekki á hættu að falla. Þá er liðið komið í undanúrslit rúmensku bikarkeppninnar og spilar þar 9. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×