Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Stefán Árni Pálsson skrifar 4. maí 2026 14:00 Sigga segist hafa lært mikið í náminu. Iðnhönnuðurinn Sigríður Heimisdóttir, kölluð Sigga Heimis, er hönnuður á heimsmælikvarða. En hún hefur meðal annars verið einn af aðalhönnuðum IKEA og einnig hönnunarstjóri og þróunarstjóri þegar hún bjó í Svíþjóð. Hún hefur einnig unnið fyrir heimsþekkt hönnunarfyrirtæki eins og Fritz Hansen og fleiri.
Sigga er alltaf að bæta við sig og þróa sitt starf og hún hóf meðal annars nýtt nám 54 ára gömul og segir að skólar séu ekki bara fyrir unga fólkið. Núna er hún að byrja nýjan kafla þar sem hún verður fagstjóri í nýrri námsleið í hönnunar- og vörutæknifræði í Háskólanum í Reykjavík. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og fékk að heyra hvernig aldrei er of seint að byrja nýtt nám eða nýja spennandi vinnu en innslagið var sýnt á Sýn í lok síðustu viku. „Ég verð að viðurkenna það að þetta er líklega eitt það besta sem ég hef gefið sjálfri mér og bara gert því að þetta var algjör vítamínsprauta og ég er í rauninni enn þá svona á skýi. Af því að ég fer úr því að vera fagmanneskja og búin að vinna mikið og í alls konar verkefnum með mismunandi aðilum, bæði innlendum og erlendum. En þarna allt í einu skipti ég alveg um gír. Tók reyndar nám sem er hannað þannig að þú getir verið í vinnu og ég vildi gera það því ég vildi nú ekki alveg sleppa hendinni af mínum viðskiptavinum og mínum verkefnum,“ segir Sigga um þetta nýja nám. Reynsla og innsýn „En þetta gaf mér alveg ómetanlega reynslu og innsýn inn í breytingar sem eru í rauninni í farvatninu í dag. Hvernig við í rauninni vinnum hlutina öðruvísi og hvernig fólk hugsar og annað. Þetta var svona algjör endurgjöf eða bara svona restart eins og maður segir. Ég byrjaði hjá IKEA fyrir mörgum árum, á síðustu öld og var þar fyrst sem hönnuður. Síðan tók við tímabil þar sem ég fór frá fyrirtækinu og fór til dæmis í stöðu hönnunarstjóra hjá Fritz Hansen í Danmörku. Eftir á að hyggja, eftir að hafa farið í námið, sé ég í dag hvað það hefði getað hjálpað mér mikið að hafa í rauninni þessi verkfæri sem ég kynntist þarna í náminu.“ Hún segist seinna hafa fengið enn stærri stöðu hjá IKEA. „Ég var þróunarstjóri í smávörunni sem var gríðarlega stórt og mikið ábyrgðarhlutverk. Þar hefði ég nú viljað hafa vissa bók úr náminu með mér og við skulum segja alls konar upplýsingar sem hefðu hjálpað til. En það sem kemur mér líka á óvart er að vissulega tekur maður að sér störf og vinnur þau eins vel og maður getur, en maður er alltaf að læra eitthvað nýtt. Ég vil meina að menntun er aldrei tímaeyðsla. Þú ert alltaf að leggja inn hjá þér.“ Uppgötvaði helling Hún segist hafa verið nokkuð viss um að hún gæti leyst mörg verkefni í náminu út frá eigin reynslu. „Það kom á daginn að það var bara alveg hellingur sem ég uppgötvaði og þetta nám sem ég fór í gengur mikið út á þetta er sem sagt kallað digital management sem er í rauninni stafræn stjórnun. Þetta er í raun svona breytingastjórnun. Við lifum í heimi þar sem eru bara sífelldar breytingar og það sem við vitum er að það verða meiri og fleiri breytingar og við þurfum bara í rauninni að læra það.“ Hér að ofan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Tíska og hönnun IKEA Vala Matt Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Fleiri fréttir Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Sjá meira