Samstarf

Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki daga­talið“

Þakvinna ehf
Þakskipti ehf hefur skipt um yfir 400 þök. „Rekagrandi í vesturbænum. Til dagsins í dag er þetta stærsta einstaka verkið okkar, 2000 fm í snarbröttu þaki og skipt um 80 velux glugga í leiðinni.“
Þakskipti ehf hefur skipt um yfir 400 þök. „Rekagrandi í vesturbænum. Til dagsins í dag er þetta stærsta einstaka verkið okkar, 2000 fm í snarbröttu þaki og skipt um 80 velux glugga í leiðinni.“

„Þök og utanhússklæðningar á Íslandi þurfa að þola mikið álag. Þegar þau nálgast circa 30-40 ára aldur er kominn tími til að fara að skoða næstu skref og mögulega endurnýjun,“ segir Örn Úlfarsson, framkvæmdastjóri Þakvinna ehf og Klæðningarvinna ehf. Nú sé rétti tíminn til að panta verk fyrir sumarið.

Sumarið bókast snemma

Þeir sem ætla í framkvæmdir ættu að hafa hraðan á sér. Verkefnalistar fyllast hratt og skipulagning hefst snemma árs. „Í kringum páskana erum við farnir að raða sumrinu upp. Þegar fólk samþykkir tilboð fer það í röð,“ segir Örn. Hann bendir á að oft taki tíma að taka ákvörðun. „Fólk hugsar þetta stundum í nokkur ár en þá uppfærum við bara tilboðin miðað við vísitölu.“

Allt ytra byrði fasteignar á einum stað

Þakvinna var stofnuð árið 2019 en byggir á áralangri reynslu. Fyrirtækið er fjölskyldurekið og í dag starfa þar þrír ættliðir.

Þrír ættliðir vinna hjá Þakvinna, hérna er gamli Úlfurinn á vaktinni, hann stjórnar gólfinu hjá Þakvinna og beitir hann þýskum her aga á mannskapinn til að halda öllu hreinu. Birkir, þriðji ættliðurinn, komst ekki í myndatöku þar sem hann þurfti að mæta í lokapróf í húsasmíðinni í FB og er engin afsláttur gefin þar.

„Við sameinuðum fyrirtæki okkar bræðranna, Þakvinna ehf og Klæðningarvinna ehf og getum því séð um allt ytra byrði fasteigna,“ segir Örn. Það þýðir að fyrirtækið sinnir ekki aðeins þökum heldur einnig klæðningum, gluggum, þakpappa og almennu viðhaldi og í raun öllu ytra byrði fasteigna.

Á sumrin, sem kallast vertíð í bransanum, vinna allt að 40-50 manns hjá fyrirtækinu sem er langstærsta einstaka fyrirtækið sem sérhæfir sig í þökum og klæðningum. 

Verkefnin eru fjölbreytt, allt frá minni einbýlishúsum upp í stórar opinberar byggingar, skóla, kirkjur og atvinnuhúsnæði víða um land. Í raun og veru er ekkert verk of stórt né lítið fyrir okkur.

Höfuðstöðvar okkar í Gjáhellu 7, Hér eru oft mikil læti á morgnana að koma flotanum og mannskapnum út, veðrið hefur þar mest að segja og þarf oft að breyta plönunum mörgum sinnum á dag.

Engin greiðsla fyrr en verkinu er lokið

Traust er lykilatriði í þessum geira og Þakvinna hefur lagt sérstaka áherslu á það í sínum rekstri.

„Öll tilboð eru fólki kostnaðar og skuldbindingarlaus og við rukkum ekki krónu fyrr en verkinu er lokið og allir sáttir. Við viljum að fólk sé öruggt með sitt.“

„Samkvæmt því sem við höfum heyrt þá erum við eina fyrirtækið sem bíður uppá þennan möguleika og hefur þetta reynst ótrúlega vel og fellur vel í kramið hjá viðskiptavinum og býr til mikið traust“.

Stórhöfði 29-31, Félag Fagfélaganna leitaði til okkar með þakskipti. Þarna þurfti að vanda vel til verka enda hvíldu augu og eyra allra meistarana á okkur allan tíman og fylgdust með að allt færi fram samkvæmt bókinni. Þakskiptin gengu vel og voru þau útskrifuð með hæstu einkunn.

Hann viðurkennir að iðnaðurinn hafi stundum þurft að vinna upp traust. „Það eru misjafnir sauðir í mörgu fé. Við leggjum gríðarlega mikla áherslu á heiðarleika og gagnsæi“.

Veðrið ræður ferðinni

Þakvinna er starfsemi sem snýst að miklu leyti um að bregðast hratt við aðstæðum. „Við horfum ekki á hvaða dagur er heldur veðurspána. Þegar gefur, þá vinnum við mjög langa daga, sama hvað dagatalið segir,“ segir Örn og bætir við að starfið sé langt frá hefðbundnum vinnutíma. „Þetta er í raun 24/7 bakvakt á sumrin og vel það. Við vinnum líka eins langt inn í haustið og mögulegt er. Undanfarin ár hafa haustin verið góð og við unnið fram í nóvember.“

Yrsufell 5-15. Okkar stærsta klæðningarverkefni hingað til og unnið fyrir Félagsbústaði. Hérna var skipt um 2000 fm álklæðningu, múrskemmdir lagaðar og 100 gluggar endurnýjaðir.

Heitt á könnunni í höfuðstöðvunum

„Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Gjáhellu 7 þar sem við höfum byggt stórglæsilega aðstöðu. Þar geta viðskiptavinir geta komið við, skoðað efni og fengið ráð. Það er alltaf heitt á könnunni. Fólk má endilega kíkja til okkar,“ segir Örn. Hann hvetur fólk til að afla sér upplýsinga áður en ráðist er í framkvæmdir.

„Við höfum skipt um yfir 400 þök og inni á heimasíðunni okkar eru flest okkar verk skráð og þar er hægt að skoða eftir hverfum. Best er að tala við aðra sem hafa farið í gegnum þetta, banka bara upp á og afla sér upplýsinga.“
Eitt af eftirminnilegri verkum okkar, hér var skipt um þak og klæðningu fyrir Hafrannsóknarstofnun í Grindavík í janúar, ekki nóg með að veður hafi verið krefjandi þá voru eldsumbrot að valda okkur líka usla en uppgjöf er ekki í boði í þessu starfi.

Fyrri verk - Þakvinna „Þetta er eina heimasíðan sem bíður uppá að sjá öll verkin skipt eftir póstnúmerum og geta þá viðskiptavinir labbað um hverfið sitt og skoðað verk eftir okkur áður en það tekur ákvörðun einnig hjálpar þetta mikið til við efnisval hjá fólki ofl, “ segir Örn.

Það hefur orðið mikil vakning undan farin ár um kosti þess að klæða steypt hús og í raun sprenging enda kostir þess mjög margir og ekki spillir heldur fegurðarsjónarmiðin. Hér er hús í fossvoginum að fá alvöru „yfirhalningu“ og tókst vel til.

Aðspurður hvort þeir tæki að sér verk út á landi „Já við förum oft og dveljum í nokkrar vikur í minni bæjum og þorpum og tökum þá nokkur verkefni í einu. Þetta árið verðum við mikið á vesturlandi“. Þetta hefur mælst gríðarlega vel enda orðið þekkt að illa hefur gengið að finna iðnaðarmenn út á landi vegna anna og kann fólk vel að meta að Þakvinna vinnur þetta hratt, vel og örugglega sem er einmitt mottóið okkar.

Skúlagata 40. Gríðarlega krefjandi þak þar sem framkvæmdin þurfti að vera í sátt við gangandi vegfarandur, einnig höfðu sjávarstraumar mikil áhrif á framkvæmdina, kannski var logn á neðstu hæð en hífandi rok á efstu hæð.

Rétti tíminn er núna

„Ef þú ætlar að ná sumrinu, þá er best að hafa samband sem fyrst.“ www.þakvinna.is og sími 6989956.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×