„Ég ætla að nýta það og sýna hvað í mér býr“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 24. apríl 2026 21:58 Ása fagnar markinu sínu í kvöld. Vísir/Vilhelm Breiðablik sigraði Þrótt 2-0 í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði annað mark Breiðabliks en henni hefur verið spáð góðu gengi í sumar eftir töluverða bekkjarsetu á síðasta tímabili. „
Það er mjög mikilvægt að byrja sterkt,“ sagði Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir, leikmaður Breiðabliks, eftir sigur liðsins í kvöld. Margir hafa spáð góðu gengi Ásu í sumar og segir Ása að það fylgi því vissulega einhver pressa. „Jújú kannski smá en ég ætla bara að hugsa um að halda áfram því sem ég er búin að vera að gera.“ Breiðablik var betri aðilinn í leiknum en leikurinn byrjaði ansi jafnt milli liðanna. „Mér fannst við byrja í smá veseni sem er kannski mjög eðlilegt miðað við fyrsta leikinn á tímabilinu. Það er alltaf smávegis stress sem fylgir því. Í seinni hálfleik fengum við færi til að klára leikinn fyrr en í 2-0 byrjaði kannski smá panic og sendingar að misheppnast, hefðum getað sleppt því.“ Ian Jeffs sem tók við liðinu eftir síðasta tímabil breytti um leikkerfi sem byrjaði ekki vel. „Nýja leikkerfið byrjaði brösulega og við skíttöpuðum gegn Hacken. En mér finnst við vera búnar að tengja rosalega vel í þessu kerfi og það hentar okkur vel miðað við þá leikmenn sem eru í liðinu.“ Ása fékk lítinn spilatíma síðasta sumar og dvaldi svolítið á bekknum undir stjórn Nic Chamberlain eftir að hafa verið valin efnilegasti leikmaðurinn árinu áður. „Það reynir rosalega á þolinmæðina en maður þarf alltaf að vera klár. Það geta verið ein meiðsli og maður er kominn inn. Liðið í fyrra var ekkert eðlilega gott, með mikla breidd og það var gríðarleg samkeppni. Ég hugsa að ég fái stærra hlutverk í sumar og ég ætla að nýta það og sýna hvað í mér býr.“
Breiðablik Besta deild kvenna Mest lesið Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Fótbolti Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Íslenski boltinn Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Fótbolti Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Sport „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Íslenski boltinn Af botninum og varð Evrópumeistari eftir 324 daga fjarveru vegna meiðsla Sport Fleiri fréttir Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld „Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ „Búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku“ Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 1-3 | Langþráður sigur Brazell „Vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag“ „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Fannst ÍBV brjóta fyrir vítadóminn „Jákvætt að tengja saman tvo sigra“ „Ákvörðun dómarans verðskuldar ekki komment“ Uppgjörið: KA - FH 0-1 | Úr fallsæti og auka á þjáningar norðanmanna Uppgjörið: Víkingur - ÍBV 2-2 | Annað misstig meistaranna Uppgjörið: ÍA - Þór 2-0 | Þrír í röð án taps hjá ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 1-0 | Stjarnan heldur áfram að þoka sér upp töfluna Árni gekk í það heilaga og fékk frí Von Völsungs lifir góðu lífi Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Framherjaleit Breiðabliks lokið Þrótti mistókst að fara á toppinn Erlingur Agnars í FH Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Sjá meira