„Ég get ekki breytt þessu“ Aron Guðmundsson skrifar 16. apríl 2026 08:02 Arnar Freyr þarf að bíta í það súra að bíða lengi eftir næsta leik sínum í Bestu deildinni. Vísir/Sigurjón Gamanið var stutt hjá Arnari Frey, markverði KR sem meiddist strax í fyrsta leik liðsins í Bestu deildinni. Fyrst var óttast að tímabilinu hjá honum væri lokið en jákvæðari fréttir hafa borist síðan þá.
Eftir langt og strangt undirbúningstímabil og eftir að hafa gert markvarðarstöðuna hjá KR að sinni meiddist Arnar á áttundu mínútu í fyrstu umferð Bestu deildarinnar í leik gegn Keflavík. Í ljós kom að sin hafði slitnað í hné hans. Fyrst um sinn var talið að tímabilinu hjá honum væri lokið en nú þykir líklegt að það muni taka Arnar fjóra mánuði að koma sér aftur í leikform. Hann gæti því náð lokahluta tímabilsins. „Til að byrja með hugsar maður um alla vinnuna sem maður hefur lagt í þetta. Að hún sé farin í vaskinn,“ segir Arnar í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Maður var farinn að sjá fram á að vera fara strax aftur í annað undirbúningstímabil. Eins þreytt og það er. En jákvætt að maður geti mögulega náð hluta af tímabilinu.“ Arnar gekk í raðir KR í fyrra og hafði gert vel í að stimpla sig inn sem aðalmarkvörður liðsins í fremur sérstöku uppleggi KR sem felur það í sér að markvörður liðsins stígur hærra upp á völlinn og tekur þátt í uppspili. „Maður þarf að hlaupa helvíti mikið. Ég held við séum að hlaupa mun meira en markverðir í öðrum liðum. Þegar að maður er að koma til baka held ég að þetta verði eins og fyrir útileikmann að koma til baka. Maður þarf líka að komast í hlaupastand. Það verður áskorun en við erum klárir í hana.“ „Þetta er leikstíll sem mér hefur alltaf langað að spila. Það er alveg gulrót að koma til baka eins fljótt og maður getur til þess að fá að spila þennan fótbolta aftur. Svo erum við með geggjað lið. Maður vill taka eins mikinn þátt í þessu og maður getur.“ Þrátt fyrir að meiðslin séu högg eyðir Arnar ekki miklum tíma í að svekkja sig á hlutunum. „Fyrst þegar að þetta gerist er þetta alveg erfitt. Maður verður tilfinningaríkur en þegar maður er farinn að hugsa meira út í þetta þá horfi ég bara á þetta þannig að ég get ekki breytt þessu. Ég reyni bara frekar að komast í gegnum þetta. Það er ekkert sem ég get gert til að snúa þessu við.“
Besta deild karla KR Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fleiri fréttir „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka Sjá meira