Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. apríl 2026 22:31 Leicester City gæti verið á leið niður um tvær deildir á tveimur árum. Stephen White - CameraSport via Getty Images Ljóst er að stigin sex sem voru dregin af Leicester City í febrúar verða hvorki fleiri né færri. Áfrýjun félagsins og áfrýjun ensku úrvalsdeildarinnar var hafnað.
Stigin voru dregin af Leicester fyrir brot á fjármálareglum enska deildasambandsins um hagnað og sjálfbærni (e. profit and sustainability rules) yfir þriggja ára tímabil sem lauk árið 2024. Tilkynnt var í dag að báðum áfrýjunum í málinu hefði verið hafnað af sjálfstæðri dómnefnd. Leicester vildi lækka refsistigin en enska úrvalsdeildin vildi harðari refsingu. Niðurstaðan þýðir að Leicester er enn í fallsæti í ensku Championship deildinni. Liðið situr í 22. sæti af 24 liðum og er einu stigi öruggu sæti þegar fimm umferðir eru eftir. Sheffield Wednesday er nú þegar fallið en alls hafa 18 stig verið dregin af miðvikudagsmönnum fyrir brot á fjármálareglum. Liðið er með -5 stig í deildinni. Ólíkt Sheffield er Leicester með örlögin í eigin höndum og getur bjargað sér frá falli en það þykir ólíklegt þar sem liðið hefur aðeins unnið einn leik á þessu ári. Einnig ólíkt Sheffield varð Leicester Englandsmeistari fyrir aðeins tíu árum síðan og hefur félagið því hrunið af töluvert hærri stalli. Fátt sem ekkert stendur eftir af meistaraliðinu fyrir áratug síðan og fall úr tveimur deildum á tveimur árum blasir við félaginu.
Enski boltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Sjá meira