Fjórtán ára þjóðhetja eftir að hann stal miða eins besta markvarðar heims Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2026 09:00 Gianluigi Donnarumma gerir sér grein fyrir því að hann er ekki á leiðinni á HM eftir tap á móti Bosníu í vítakeppni. Hann hefur verið í ítalska landsliðinu í langan tíma en hefur enn ekki komist á heimsmeistaramótið. Getty/ Hinn fjórtán ára gamli Afan Cizmic er óvænt kominn í sviðsljósið eftir að hafa stolið minnismiða stjörnumarkvarðarins Gianluigi Donnarumma um vítaskyttur Bosníu og Hersegóvínu.
Bosníumenn komust á heimsmeistaramótið í sumar á kostnað Ítala og Donnarumma hefur enn ekki tekist að komast með ítalska landsliðinu á heimsmeistaramót þrátt fyrir að hafa spilað með landsliðinu í áratug. Á samfélagsmiðlum er drengurinn hylltur af bosnískum fótboltaaðdáendum fyrir þetta ósvífna athæfi. Hann náði í minnismiða Donnarumma fyrir úrslitavítaspyrnukeppnina í umspili fyrir HM í síðustu viku. „Ég sá blaðsnepilinn og vissi strax hvað þetta var. Ég tók hann og faldi. Hann innihélt upplýsingar um alla okkar leikmenn. Og án þessa miða þyrfti Donnarumma bara að treysta á eigið innsæi,“ sagði Afan Cizmic við bosnísku sjónvarpsstöðina Face TV, samkvæmt Aftonbladet. Þjófnaðurinn átti sér stað þegar upp komu læti milli markvarða liðanna tveggja, þar sem Donnarumma er sagður hafa reynt að rífa í sundur miða Nikola Vasilj með samsvarandi upplýsingum. Bosnía mætir gestgjöfunum Kanada í opnunarleik HM þann 12. júní og mun einnig mæta Sviss og Katar í riðlakeppninni. Svo miklar eru vinsældir stráksins að margir vilja að hann fari með bosníska landsliðinu á heimsmeistaramótið en leikir liðsins í riðlakeppninni eru í Toronto í Kanada og bandarísku borgunum Los Angeles og Seattle. Bosníska sjónvarpsstöðin hefur haft uppi á Cizmic og vill nú taka hann með á heimsmeistaramótið sem lukkudýr liðsins. View this post on Instagram A post shared by Rising Ballers (@risingballers)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Enski boltinn Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Barcelona Evrópumeistari Fótbolti Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Enski boltinn Sara Björk kveður Sádi-Arabíu Fótbolti „Allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann“ Íslenski boltinn Skikkaðir í einangrun fram að HM Fótbolti Benítez rekinn eftir 40 leiki Fótbolti Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Íslenski boltinn Haukur mikilvægari en Gidsel Handbolti Fleiri fréttir Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Slæm stjórnartíð Steve Cooper tekur enda Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Ef vængirnir eru úr vaxi þá bráðna þeir“ Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann „Við réðum ekkert við þá“ „Hefðum getað skorað fleiri“ „Ánægður með þá sem komu inn í liðið“ „Mér fannst vanta upp á orkustigið“ Sara Björk kveður Sádi-Arabíu „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Brynjar Ingi með annan fótinn niður í þriðju deild Víkingur R. - FH 5-0 | Markaveisla í Víkinni Viktor Bjarki dregur sig úr landsliðshópnum Sjá meira