„Á Ítalíu væri Yamal að spila í Serie B“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. apríl 2026 08:01 Jürgen Klinsmann segir ítölsk félög of hrædd við að gefa ungum leikmönnum tækifæri. getty/You Fang Jürgen Klinsmann hefur blandað sér í umræðuna um stöðu fótboltans á Ítalíu eftir að karlalandsliðinu mistókst að komast á þriðja heimsmeistaramótið í röð. Hann segir ítölsk félög ekki treysta ungum leikmönnum.
Ítalía tapaði fyrir Bosníu í vítaspyrnukeppni, 4-1, í umspili um sæti á HM í síðustu viku. HM 2026 er þriðja heimsmeistaramótið sem Ítalir komast ekki á. Ítalía varð heimsmeistari 2006 en hefur síðan þá aðeins unnið einn leik á HM. Þessi eini sigur kom gegn Englandi 2014. Klinsmann segir að vandræði Ítala megi rekja til tregðu þeirra til að nota og treysta ungum leikmönnum. „Þeir eru að borga brúsann af skorti á leiðtogum, tæknilega góðum leikmönnum og vantrausti á ungum leikmönnum,“ sagði Klinsmann. „Á Ítalíu væru Lamine Yamal og Jamal Musiala sennilega að spila í Serie B til að öðlast reynslu. Þetta getur ekki verið svona.“ Klinsmann bætti við að fyrsta hugsun í ítalska boltanum væri að forðast tap í stað þess að sækja til sigurs. Og hann segir að afleiðingarnar séu augljósar. Frá tapinu gegn Bosníu hefur Gennaro Gattuso sagt af sér sem landsliðsþjálfari Ítalíu. Forseti knattspyrnusambandsins, Gabriele Gravina, er einnig hættur sem og Gianluigi Buffon sem var yfirmaður sendinefndar ítalska landsliðsins. Ítalía varð Evrópumeistari fyrir fimm árum en mistókst í kjölfarið að komast á HM 2022. Ítalir ollu vonbrigðum á EM 2024 og verða ekki meðal þeirra 48 liða sem taka þátt á HM í sumar.
Ítalski boltinn HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir Forsetinn segir af sér og UEFA hótar Ítölum Ítalir misstu af sínu þriðja heimsmeistaramóti í röð og forseti ítalska knattspyrnusambandsins hefur nú tekið ábyrgð á því. Það gæti kallað á aðferðir hjá Knattspyrnusambandi Evrópu sem hefur líka varað ítalska sambandið við. 3. apríl 2026 14:00 Gæti Guardiola tekið við Ítölum? Eftir enn ein vonbrigði Ítalíu í undankeppni HM í fótbolta velta Ítalir nú vöngum yfir því hver sé best til þess fallinn að reisa liðið úr öskustónni. Vinsælasta íþróttablað Ítalíu hefur nú nefnt Pep Guardiola sem óvæntan kost í stöðunni. 2. apríl 2026 23:16 Gattuso stígi til hliðar en hver tekur við? Gennaro Ivan Gattuso mun segja upp sem þjálfari ítalska karlalandsliðsins í fótbolta eftir að liðinu mistókst, þriðja skiptið í röð, að komast á HM. Stór nöfn eru orðuð við starfið. 2. apríl 2026 12:00 Hafa ekki spilað á HM síðan Suárez beit Chiellini Ítalir verða ekki með á þriðja heimsmeistaramótinu í röð eftir að hafa tapað í vítaspyrnukeppni gegn Bosníu og Hersegóvínu í umspilinu í gærkvöldi. 1. apríl 2026 12:31 Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Serbía - Ísland | Mæta Jokic í gini úlfsins Körfubolti Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Fleiri fréttir Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Sjá meira
Forsetinn segir af sér og UEFA hótar Ítölum Ítalir misstu af sínu þriðja heimsmeistaramóti í röð og forseti ítalska knattspyrnusambandsins hefur nú tekið ábyrgð á því. Það gæti kallað á aðferðir hjá Knattspyrnusambandi Evrópu sem hefur líka varað ítalska sambandið við. 3. apríl 2026 14:00
Gæti Guardiola tekið við Ítölum? Eftir enn ein vonbrigði Ítalíu í undankeppni HM í fótbolta velta Ítalir nú vöngum yfir því hver sé best til þess fallinn að reisa liðið úr öskustónni. Vinsælasta íþróttablað Ítalíu hefur nú nefnt Pep Guardiola sem óvæntan kost í stöðunni. 2. apríl 2026 23:16
Gattuso stígi til hliðar en hver tekur við? Gennaro Ivan Gattuso mun segja upp sem þjálfari ítalska karlalandsliðsins í fótbolta eftir að liðinu mistókst, þriðja skiptið í röð, að komast á HM. Stór nöfn eru orðuð við starfið. 2. apríl 2026 12:00
Hafa ekki spilað á HM síðan Suárez beit Chiellini Ítalir verða ekki með á þriðja heimsmeistaramótinu í röð eftir að hafa tapað í vítaspyrnukeppni gegn Bosníu og Hersegóvínu í umspilinu í gærkvöldi. 1. apríl 2026 12:31