Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2026 18:39 Lucas Perri, markvörður Leeds United, varði tvær spyrnur frá leikmönnum West Ham United í vítakeppninni í mögnuðum bikarleik liðanna á Lundúnaleikvanginum. getty/Mike Hewitt Tæplega fjörutíu ára bið Leeds United eftir að komast í undanúrslit ensku bikarkeppninnar í fótbolta er lokið. Leeds vann West Ham í vítaspyrnukeppni eftir ótrúlegan leik. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 2-2 en Hamrarnir jöfnuðu með tveimur mörkum í uppbótartíma.
Leeds komst síðast í undanúrslit bikarkeppninnar 1987 þegar liðið tapaði fyrir Coventry City, 3-2, eftir framlengingu á Hillsbrough í Sheffield. Leeds varð bikarmeistari í fyrsta og eina sinn 1972. Japaninn Ao Tanaka var í byrjunarliði Leeds í dag og hann þakkaði traustið með marki á 26. mínútu. Skot hans fór í Axel Disasi og boltinn fór yfir Alphonse Areola, markvörð West Ham, og í netið. Heimamenn sóttu í sig veðrið í seinni hálfleik og eftir rúmlega klukkutíma voru þeir hársbreidd frá því að jafna þegar Taty Castellanos skallaði í stöngina. Dominic Calvert-Lewin kom inn á sem varamaður á 69. mínútu og sex mínútum síðar kom hann Leeds í 0-2 með marki úr vítaspyrnu. Hún var dæmd á Max Kilman fyrir klaufalegt brot á Brendan Aaronson. Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma átti Jarrod Bowen, fyrirliði West Ham, skot sem small í stönginni á marki Leeds. Boltinn féll beint fyrir fætur Matheus Fernandes sem skoraði og minnkaði muninn í 1-2. Þremur mínútum síðar jafnaði Disasi eftir fyrirgjöf Adamas Traoré frá vinstri. Disasi var á undan Pascal Struijk í boltann, stýrði honum í netið og staðan orðin jöfn, 2-2. Fyrri hálfleikur framlengingarinnar var afar fjörugur en tvö mörk voru þá dæmd af West Ham. Í seinni hálfleik framlengingarinnar meiddist Areola og í hans stað kom hinn tvítugi Finlay Herrick í sínum fyrsta leik fyrir West Ham. Og hann stóð á milli stanganna í vítakeppninni. Herrick varði fyrstu spyrnu Leeds frá Joël Piroe en Lucas Perri varði sömuleiðis frá Bowen. Liðin skoruðu úr næstu fimm spyrnum sínum en Perri varði svo frá Pablo. Struijk gat því tryggt Leeds farseðilinn í undanúrslitin með því að skora úr næstu spyrnu liðsins. Hann gerði það af öryggi, setti boltann í stöng og inn og Leeds vann vítakeppnina, 2-4.
Enski boltinn West Ham United Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Sjá meira