Linda Líf í hópnum gegn Úkraínu og Englandi Sindri Sverrisson skrifar 27. mars 2026 13:16 Linda Líf Boama lék með Víkingi áður en hún hélt út í atvinnumennsku til Svíþjóðar. vísir / diego Einn nýliði er í íslenska landsliðshópnum sem valinn hefur verið fyrir leikina gegn Úkraínu og Englandi, í undankeppni HM kvenna í fótbolta.
Hópurinn er að langmestu leyti sá sami og í fystu leikjum undankeppinnar, þegar Ísland tapaði gegn Spáni og Englandi á útivelli. Tvær breytingar eru þó gerðar. Arna Eiríksdóttir miðvörður snýr aftur eftir meiðsli og þá fær nýliðinn Linda Líf Boama, sem nú leikur með Kristianstad, stórt tækifæri. Elín Helena Karlsdóttir og Berglind Rós Ágústsdóttir detta hins vegar út. Landsliðshópurinn sem mætir Úkraínu og Englandi í apríl.KSÍ Karitas Tómasdóttir kom inn í síðasta landsliðsverkefni, eftir að Katla Tryggvadóttir veiktist, en Katla er nú með á nýjan leik. Leikirnir við Úkraínu og England verða 14. og 18. apríl, á Laugardalsvelli. Lykilatriði að enda fyrir ofan Úkraínu Ísland tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í undankeppninni, í byrjun þessa mánaðar, á útivelli gegn Spáni og Englandi, og er því enn án stiga líkt og Úkraína. Aðeins efsta liðið kemst beint á HM en hin þrjú fara í stórt og mikið umspil. Ætla má að Ísland og Úkraína keppist um 3. sæti riðilsins og það yrði gífurlega mikilvægt að ná því sæti. Ekki aðeins nær það lið að halda sér uppi í A-deild heldur bíður þess mun greiðari leið í gegnum HM-umspilið. Liðið sem endar í 3. sæti er þannig til dæmis öruggt um að þurfa ekki að spila við neina af átta bestu þjóðum Evrópu um HM-farseðil, heldur myndi það spila fyrst við lið úr C-deild og svo í versta falli við lið sem annað hvort hefur unnið sinn riðil í B-deild eða lent í 4. og neðsta sæti í sínum riðli í A-deild. Þess vegna er algjört lykilatriði fyrir Ísland að enda fyrir ofan Úkraínu og leikurinn 14. apríl óhemju mikilvægur.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Íslenski boltinn Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Handbolti Orri á skotskónum Fótbolti Versta byrjun í sögu FH Íslenski boltinn Russell á ráspól í Kanada Formúla 1 Kane með þrennu í úrslitaleik Fótbolti Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Slæm stjórnartíð Steve Cooper tekur enda Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Ef vængirnir eru úr vaxi þá bráðna þeir“ Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann „Við réðum ekkert við þá“ „Hefðum getað skorað fleiri“ „Ánægður með þá sem komu inn í liðið“ „Mér fannst vanta upp á orkustigið“ Sara Björk kveður Sádi-Arabíu Sjá meira