Svona var fundurinn: Hópurinn fyrir lykilleiki á leiðinni til Brasilíu Sindri Sverrisson skrifar 27. mars 2026 12:45 Þorsteinn Halldórsson kynnti í dag hópinn sem mætir Úkraínu og Englandi. vísir/Sigurjón Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í fótbolta, kynnti í dag leikmannahópinn fyrir næstu tvo leiki í undankeppni HM 2027.
Um er að ræða fyrstu tvo heimaleiki Íslands, gegn Úkraínu 14. apríl og sjálfum Evrópumeisturum Englands 18. apríl. Upptaka frá fundinum er aðgengileg hér fyrir neðan. Klippa: Blaðamannafundur KSÍ 27.03.2026 Tvær breytingar eru á hópnum frá síðasta verkefni, eða í raun þrjár. Linda Líf Boama, framherji Kristianstad, kemur inn sem nýliði og Arna Eiríksdóttir snýr aftur eftir meiðsli. Þá er Katla Tryggvadóttir klár eftir að hafa veikst í síðasta verkefni. Berglind Rós Ágústsdóttir og Elín Helena Karlsdóttir eru hins vegar ekki með núna, né heldur Karitas Tómasdóttir sem kölluð var inn þegar Katla veiktist. Landsliðshópurinn sem mætir Úkraínu og Englandi í apríl.KSÍ Ísland tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í undankeppninni, í byrjun þessa mánaðar, á útivelli gegn Spáni og Englandi, og er því enn án stiga líkt og Úkraína. Aðeins efsta liðið kemst beint á HM en hin þrjú fara í stórt og mikið umspil. Ætla má að Ísland og Úkraína keppist um 3. sæti riðilsins og það yrði gífurlega mikilvægt að ná því sæti. Ekki aðeins nær það lið að halda sér uppi í A-deild heldur bíður þess mun greiðari leið í gegnum HM-umspilið. Liðið sem endar í 3. sæti er þannig til dæmis öruggt um að þurfa ekki að spila við neina af átta bestu þjóðum Evrópu um HM-farseðil, heldur myndi það spila fyrst við lið úr C-deild og svo í versta falli við lið sem annað hvort hefur unnið sinn riðil í B-deild eða lent í 4. og neðsta sæti í sínum riðli í A-deild. Þess vegna er algjört lykilatriði fyrir Ísland að enda fyrir ofan Úkraínu og leikurinn 14. apríl óhemju mikilvægur.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Orri á skotskónum Fótbolti Russell á ráspól í Kanada Formúla 1 Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Handbolti Kane með þrennu í úrslitaleik Fótbolti Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Íslenski boltinn Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Enski boltinn Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Slæm stjórnartíð Steve Cooper tekur enda Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Ef vængirnir eru úr vaxi þá bráðna þeir“ Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann „Við réðum ekkert við þá“ „Hefðum getað skorað fleiri“ „Ánægður með þá sem komu inn í liðið“ „Mér fannst vanta upp á orkustigið“ Sara Björk kveður Sádi-Arabíu „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Sjá meira