„Sýndi að hann er einn allra besti framherji Evrópu“ Sindri Sverrisson skrifar 27. mars 2026 09:31 Viktor Gyökeres fagnaði mörkunum sínum í gær með hefðbundnum hætti. Getty/Lukasz Germaniuk PSG-varnarmaðurinn Illia Zabarnyi fær eflaust martraðir og þjálfari Úkraínu sparaði ekki hrósið, eftir magnaða frammistöðu Viktors Gyökeres í 3-1 sigri Svía gegn Úkraínumönnum í gærkvöld.
Arsenal-framherjinn skoraði frábæra þrennu í leiknum og sá til þess að Svíar fá nú úrslitaleik við Pólverja, á heimavelli næsta þriðjudag, um að komast á HM í Ameríku í sumar. Þar verða Gyökeres og Robert Lewandowski eflaust í sviðsljósinu. Gyökeres sýndi markanef sitt þegar hann skoraði fyrsta mark leiksins í gær, af stuttu færi, og annað markið kom svo eftir langa sendingu frá markverði þar sem Gyökeres nýtti sér mistök Zabarnyi. Gyökeres stal svo boltanum af Zabarnyi þegar hann skoraði þriðja mark sitt, úr vítaspyrnu sem hann fékk eftir langan sprett frá miðlínunni. Mörkin má sjá á vef UEFA, með því að skrá sig inn þar. „Gyökeres réði úrslitum“ Úkraínumenn höfðu komist í umspilið með því að vinna báða leiki sína við Ísland í undankeppni HM síðasta haust. Þjálfari þeirra, Sergei Rebrov, viðurkenndi að Gyökeres væri einn allra besti framherji Evrópu í dag og það hefði ráðið úrslitum. „Ég hafði trú á mínu liði allan leikinn. Við gerðum allt sem við gátum og fengum færi til að skora en þeir særðu okkur með marki snemma leiks, sem og snemma í seinni hálfleik. Við kláruðum leikinn vel en það var ekki nóg. Viktor Gyökeres réði úrslitum í kvöld. Hann sýndi gæði sín og sannaði að hann er einn allra besti framherji Evrópu,“ sagði Rebrov eftir leik.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Íslenski boltinn Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Handbolti Orri á skotskónum Fótbolti Versta byrjun í sögu FH Íslenski boltinn Russell á ráspól í Kanada Formúla 1 Kane með þrennu í úrslitaleik Fótbolti Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Slæm stjórnartíð Steve Cooper tekur enda Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Ef vængirnir eru úr vaxi þá bráðna þeir“ Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann „Við réðum ekkert við þá“ „Hefðum getað skorað fleiri“ „Ánægður með þá sem komu inn í liðið“ „Mér fannst vanta upp á orkustigið“ Sara Björk kveður Sádi-Arabíu Sjá meira