Hópurinn sem á að koma Íslandi á fjórða stórmótið í röð Sindri Sverrisson skrifar 26. mars 2026 12:32 Elín Klara Þorkelsdóttir og Sandra Erlingsdóttir ætla á EM í desember og sigurinn magnaði gegn Svartfellingum jók líkurnar á því til muna. vísir/Hulda Margrét Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í handbolta, kynnti í dag nýjasta leikmannahóp sinn, í beinni útsendingu á Vísi. Fram undan eru leikir sem ráða því hvort Ísland verður með á EM í lok þessa árs. Íslenski hópurinn kemur saman í Færeyjum 6. apríl og spilar svo við heimakonur 8. apríl. Eftir þann leik heldur liðið svo til Íslands og spilar við Portúgal á Ásvöllum 12. apríl, leik sem mögulega gæti skilað Íslandi á sjálft Evrópumótið. Leikmannahópur Íslands: Markverðir: Hafdís Renötudóttir Sara Sif Helgadóttir - Vinstra horn: Rakel Oddný Guðmundsdóttir Harpa María Friðgeirsdóttir - Vinstri skyttur: Andrea Jacobsen Lovísa Thompson - Miðjumenn: Elín Rósa Magnúsdóttir Elín Klara Þorkelsdóttir Sandra Erlingsdóttir - Hægri skyttur: Díana Dögg Magnúsdóttir Sara Dögg Hjaltadóttir - Hægra horn: Katrín Anna Ásmundsdóttir Sonja Lind Sigsteinsdóttir - Línumenn: Elísa Elíasdóttir Katrín Tinna Jensdóttir Matthildur Lilja Jensdóttir Hópferð verður á leikinn í Færeyjum sem HSÍ stendur fyrir í samstarfi við Icelandair. Samherji ætlar svo að bjóða Íslendingum að mæta frítt á leikinn við Portúgal og verða miðar í boði á stubb.is. Hægri skyttan Thea Imani Sturludóttir og vinstri hornamaðurinn Dana Björg Guðmundsdóttir eru ekki í leikmannahópnum, vegna meiðsla. Hafdís Renötudóttir er hins vegar klár í slaginn og reiknar með að geta byrjað að spila að nýju um helgina, eftir að hafa dottið út vegna höfuðmeiðsla í síðasta landsliðsverkefni. Leikmannahópur Íslands var kynntur á fundi HSÍ í höfuðstöðvum Arion í dag. Eftir sigurinn frækna gegn Svartfjallalandi í byrjun mars er Ísland með örlögin í eigin höndum. Liðið er þó enn neðst í sínum riðli, með tvö stig, en Færeyjar og Portúgal með fjögur stig hvort og Svartfellingar sex. Efstu tvö liðin fara á EM og fjögur lið með bestan árangur í 3. sæti, í undanriðlunum sex, komast einnig á mótið. Evrópumótið sjálft fer fram í desember og gæti orðið fjórða stórmótið í röð sem Ísland kemst á. Mótið fer fram í fimm löndum: Tékklandi, Póllandi, Rúmeníu, Slóvakíu og Tyrklandi. EM kvenna í handbolta 2026 Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira
Íslenski hópurinn kemur saman í Færeyjum 6. apríl og spilar svo við heimakonur 8. apríl. Eftir þann leik heldur liðið svo til Íslands og spilar við Portúgal á Ásvöllum 12. apríl, leik sem mögulega gæti skilað Íslandi á sjálft Evrópumótið. Leikmannahópur Íslands: Markverðir: Hafdís Renötudóttir Sara Sif Helgadóttir - Vinstra horn: Rakel Oddný Guðmundsdóttir Harpa María Friðgeirsdóttir - Vinstri skyttur: Andrea Jacobsen Lovísa Thompson - Miðjumenn: Elín Rósa Magnúsdóttir Elín Klara Þorkelsdóttir Sandra Erlingsdóttir - Hægri skyttur: Díana Dögg Magnúsdóttir Sara Dögg Hjaltadóttir - Hægra horn: Katrín Anna Ásmundsdóttir Sonja Lind Sigsteinsdóttir - Línumenn: Elísa Elíasdóttir Katrín Tinna Jensdóttir Matthildur Lilja Jensdóttir Hópferð verður á leikinn í Færeyjum sem HSÍ stendur fyrir í samstarfi við Icelandair. Samherji ætlar svo að bjóða Íslendingum að mæta frítt á leikinn við Portúgal og verða miðar í boði á stubb.is. Hægri skyttan Thea Imani Sturludóttir og vinstri hornamaðurinn Dana Björg Guðmundsdóttir eru ekki í leikmannahópnum, vegna meiðsla. Hafdís Renötudóttir er hins vegar klár í slaginn og reiknar með að geta byrjað að spila að nýju um helgina, eftir að hafa dottið út vegna höfuðmeiðsla í síðasta landsliðsverkefni. Leikmannahópur Íslands var kynntur á fundi HSÍ í höfuðstöðvum Arion í dag. Eftir sigurinn frækna gegn Svartfjallalandi í byrjun mars er Ísland með örlögin í eigin höndum. Liðið er þó enn neðst í sínum riðli, með tvö stig, en Færeyjar og Portúgal með fjögur stig hvort og Svartfellingar sex. Efstu tvö liðin fara á EM og fjögur lið með bestan árangur í 3. sæti, í undanriðlunum sex, komast einnig á mótið. Evrópumótið sjálft fer fram í desember og gæti orðið fjórða stórmótið í röð sem Ísland kemst á. Mótið fer fram í fimm löndum: Tékklandi, Póllandi, Rúmeníu, Slóvakíu og Tyrklandi.
Leikmannahópur Íslands: Markverðir: Hafdís Renötudóttir Sara Sif Helgadóttir - Vinstra horn: Rakel Oddný Guðmundsdóttir Harpa María Friðgeirsdóttir - Vinstri skyttur: Andrea Jacobsen Lovísa Thompson - Miðjumenn: Elín Rósa Magnúsdóttir Elín Klara Þorkelsdóttir Sandra Erlingsdóttir - Hægri skyttur: Díana Dögg Magnúsdóttir Sara Dögg Hjaltadóttir - Hægra horn: Katrín Anna Ásmundsdóttir Sonja Lind Sigsteinsdóttir - Línumenn: Elísa Elíasdóttir Katrín Tinna Jensdóttir Matthildur Lilja Jensdóttir
EM kvenna í handbolta 2026 Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira