Glódís vissi strax upp á sig sökina Sindri Sverrisson skrifar 26. mars 2026 10:33 Glódís Perla Viggósdóttir var glaðbeitt eftir sigurinn gegn Manchester United á Old Trafford í gærkvöld. Getty/Martin Rickett Glódís Perla Viggósdóttir gat gengið glöð af velli á Old Trafford í gærkvöld, eftir frábæran 3-2 sigur gegn Manchester United, og var sjálfsagt enn fegnari en ella því hún hafði fengið dæmda á sig vítaspyrnu í leiknum.
Glódís er fyrirliði Bayern München og hún leiddi liðið út á Old Trafford í sögulegum leik í gærkvöld, þegar United spilaði í fyrsta sinn í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Pernille Harder kom Bayern tvívegis yfir í leiknum en United náði jafnoft að jafna og kom fyrra markið eftir víti sem dæmt var á Glódísi. Eins og sjá má í hápunktum leiksins hér að neðan gerði Glódís enga tilraun til að mótmæla dómnum, eftir að hennar gamli liðsfélagi Lea Schüller skaut boltanum upp í hönd Glódísar. Vítadóminn og öll helstu atvik úr leiknum má sjá að neðan: Glódís hugsar þó eflaust liðsfélögum sínum þegjandi þörfina eftir að hafa fengið Schüller eina gegn sér í vítateignum, eftir að United-liðið spilaði sig auðveldlega í gegnum fjóra leikmenn Bayern úti á kanti. En Bayern endaði á að vinna leikinn 3-2 þökk sé fallegu sigurmarki hinnar tvítugu, japönsku Momoko Tanikawa sem skoraði á 84. mínútu. 🪄𝑷𝒍𝒂𝒚𝒆𝒓 𝒐𝒇 𝒕𝒉𝒆 𝒎𝒂𝒕𝒄𝒉 ✨ pic.twitter.com/A3W9SJEENe— FC Bayern Frauen (@FCBfrauen) March 25, 2026 Bayern er því með forskot fyrir seinni leik liðanna á Allianz Arena næsta miðvikudagskvöld, þar sem það ræðst hvort það verður Glódís eða United sem kemst í undanúrslit Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn á ferlinum. Þangað hefur Bayern nefnilega ekki komist frá árinu 2021, eða áður en Glódís gekk í raðir félagsins.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Íslenski boltinn Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Handbolti Orri á skotskónum Fótbolti Versta byrjun í sögu FH Íslenski boltinn Russell á ráspól í Kanada Formúla 1 Kane með þrennu í úrslitaleik Fótbolti Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Kane með þrennu í úrslitaleik Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Skikkaðir í einangrun fram að HM Benítez rekinn eftir 40 leiki Spilar sinn síðasta leik í dag Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Slæm stjórnartíð Steve Cooper tekur enda Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Ef vængirnir eru úr vaxi þá bráðna þeir“ Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann „Við réðum ekkert við þá“ „Hefðum getað skorað fleiri“ „Ánægður með þá sem komu inn í liðið“ „Mér fannst vanta upp á orkustigið“ Sara Björk kveður Sádi-Arabíu Sjá meira