Víkingskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2026 19:56 Bergdís Sveinsdóttir skoraði eitt mark og lagði upp tvö í sigri Víkinga í kvöld. Vísir/Anton Víkingskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna í fótbolta eftir 4-2 sigur á Þrótti í undanúrslitaleik í Laugardalnum í kvöld.
Víkingsliðið mætir Breiðabliki í úrslitaleiknum eftir fimm daga eða á laugardaginn kemur en Breiðablik vann 6-1 sigur á Stjörnunni í hinum undanúrslitaleiknum. Bergdís Sveinsdóttir var á bak við öll fjögur mörk Víkingsliðsins í leiknum en hún skoraði eitt og lagði upp hin þrjú. Víkingar fengu algjöra draumabyrjun þegar liðið skoraði tvö mörk á fyrstu tólf mínútum leiksins. Fyrst skoraði Bergdís Sveinsdóttir á 5. mínútu með skoti beint úr hornspyrnu. Bergdís átti síðan líka stóran þátt í öðru marki Víkingsliðsins aðeins sjö mínútum síðar. Jóhanna Elín Halldorsdóttir gerði þá frábærlega í því að spila Bergdísi eina í gegn í teignum en Mollee Swift varði frá henni. Jasmín Erla Ingadóttir var hins vegar á réttum stað og setti frákastið í markið. Staðan var 2-0 fyrir Víkingskonur. Þróttur vann sig inn í leikinn og Sæunn Björnsdóttir tók aukaspyrnu á 31. mínútu sem Unnur Dóra Bergsdóttir framlengdi í markið. Jóhanna Elín kom Víkingi í 3-1 á 59. mínútu með skoti úr teignum eftir frábæran undirbúning Bergdísar sem sprendi upp vörnina með gullsendingu. Lokamarkið skoraði Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir, nýr fyrirliði Víkingsliðsins, með skalla á 88. mínútu eftir stoðsendingu Bergdísar í framhaldi af stuttri hornspyrnu. Þróttarar minnkuðu muninn með marki í blálokin þegar Unnur Dóra Bergsdóttir skallaði boltann í markið eftir mikla orrahríð og endaði því leikinn með tvö mörk.
Lengjubikar kvenna Víkingur Reykjavík Þróttur Reykjavík Mest lesið Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Íslenski boltinn Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Fótbolti Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Körfubolti Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Fótbolti Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Sport „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld „Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ „Búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku“ Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 1-3 | Langþráður sigur Brazell „Vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag“ „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Fannst ÍBV brjóta fyrir vítadóminn „Jákvætt að tengja saman tvo sigra“ „Ákvörðun dómarans verðskuldar ekki komment“ Uppgjörið: KA - FH 0-1 | Úr fallsæti og auka á þjáningar norðanmanna Uppgjörið: Víkingur - ÍBV 2-2 | Annað misstig meistaranna Uppgjörið: ÍA - Þór 2-0 | Þrír í röð án taps hjá ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 1-0 | Stjarnan heldur áfram að þoka sér upp töfluna Árni gekk í það heilaga og fékk frí Von Völsungs lifir góðu lífi Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Framherjaleit Breiðabliks lokið Þrótti mistókst að fara á toppinn Erlingur Agnars í FH Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Sjá meira