Golf

Guð­rún Brá náði þriðja sætinu í Suður-Afríku

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðrún Brá Björgvinsdóttir var að spila mjög vel á mótinu í Suður-Afríku.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir var að spila mjög vel á mótinu í Suður-Afríku. Getty/Seb Daly

Guðrún Brá Björgvinsdóttir endaði jöfn í þriðja sæti á Platinum Ladies Open-mótinu í Suður-Afríku sem lauk í dag. Guðrún lék frábært golf í mótinu og spilaði hringina þrjá á fjórtán höggum undir pari.

Guðrún lék fyrsta hringinn á 69 höggum, þremur undir pari vallarins. Hún fékk þar þrjá fugla og tapaði ekki höggi.

Annan hringinn lék Guðrún á 66 höggum, sex undir pari. Það var frábær hringur, en einungis tveir kylfingar léku á lægra skori en Guðrún þann daginn. Hún fékk sjö fugla og einn skolla á þessum magnaða hring og kom sér upp í sjötta sæti mótsins fyrir lokahringinn.

Íslandsmeistarinn hélt góðu gengi sínu áfram í dag og kom í hús á 68 höggum, fjórum undir pari vallarins. Eftir fimm fugla á fyrstu þrettán holunum var Guðrún í mjög góðri stöðu. Sjaldséðir skollar birtust á fjórtándu og sextándu holunum, en hún fylgdi þeim vel eftir með frábærum fuglum á sautjándu og átjándu holunum.

Þetta var fjórða og síðasta mót Guðrúnar á Sunshine-mótaröðinni í ár, en hún lék mjög gott golf í Suður-Afríku. Hún stefnir að því að nýta sér þennan góða undirbúning en LET-mótaröðin, sem hún leikur á í sumar, heldur til Suður-Afríku í apríl.

Tveir aðrir íslenskir keppendur

Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir voru einnig á meðal keppenda mótsins.

Hulda Clara endaði mótið jöfn í 33. sæti á fimm höggum undir pari. Þegar leik var frestað á öðrum keppnisdegi var Hulda nokkrum höggum utan við niðurskurðarlínuna, en komst í gegnum niðurskurð eftir frábæra spilamennsku í morgun þegar leik var haldið áfram. Hún lék þær níu holur sem hún átti eftir á fimm höggum undir pari og tryggði sig áfram með fugli á lokaholunni.

Hulda lék lokahringinn einnig vel, hún kom í hús á 70 höggum, fékk tvo fugla og var skollalaus. Andrea náði ekki í gegnum niðurskurð. Hún lék hringi sína á 72-71 höggi og endaði á einu höggi undir pari í heildina.

Andrea og Hulda verða áfram í Suður-Afríku og leika í ABSA Ladies Invitational-mótinu í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×