Handbolti

Strákarnir okkar spila HM þar sem Ís­lendingar eru dáðir og dýrkaðir

Sindri Sverrisson skrifar
Ísland er í hópi örfárra þjóða sem nú þegar vita hvar þær munu spila á HM í byrjun næsta árs.
Ísland er í hópi örfárra þjóða sem nú þegar vita hvar þær munu spila á HM í byrjun næsta árs. EPA/JOHAN NILSSON

Nú er orðið ljóst hvar íslenska karlalandsliðið í handbolta mun spila sína leiki á næsta stórmóti; heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í byrjun næsta árs.

Ísland mun spila í H-riðli á HM og verður sá riðill spilaður í Magdeburg en þar sóttust menn mjög eftir því að fá Íslendinga til sín.

Það er engin furða enda er félagsliðið í Magdeburg með þrjá lykilmenn íslenska landsliðsins í sínum röðum sem átt hafa stóran þátt í mikilli velgengni liðsins síðustu ár. Það eru auðvitað þeir Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson.

En sagan nær vissulega lengra aftur og þegar liðið vann Meistaradeild Evrópu árið 2002, og Evrópudeildina ári áður, lék það undir stjórn Alfreðs Gíslasonar sem nú stýrir þýska landsliðinu. Ólafur Stefánsson var þá í algjöru lykilhlutverki hjá liðinu og menn á borð við Sigfús Sigurðsson, Arnór Atlason, Einar Hólmgeirsson og Björgvin Pál Gústavsson hafa einnig spilað með liðinu.

Mæta nær örugglega Dönum í Hannover

Fari svo að Ísland komist áfram úr sínum riðli, eins og búast má við því það gera þrjú af fjórum liðum, mun liðið spila í milliriðli í Hannover, gegn þremur liðum úr G-riðli.

Það eina sem er ljóst er að liðið mun þá mæta ríkjandi Evrópu-, heims- og ólympíumeisturum Danmerkur sem búið er að raða í G-riðilinn.

Af þeim sex liðum sem spila í milliriðlinum munu tvö komast áfram í 8-liða úrslit mótsins sem fram fara í Lanxess Arena í Köln líkt og undanúrslitin og úrslitin.

Dregið verður í riðla fyrir HM í München 10. júní og þá skýrist betur hvaða liðum Ísland mun mæta á mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×