Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2026 07:01 Dominik Szoboszlai fagnar aukaspyrnumarki sínu fyrir Liverpool á móti Tottenham um síðustu helgi. Getty/Liverpool FC/ Dominik Szoboszlai skoraði frábært mark beint úr aukaspyrnu um helgina en það dugði Liverpool ekki til sigurs. Liðið mætti ísköldu Tottenham-liði á heimavelli en tókst samt ekki að landa sigri. Vonbrigðin voru gríðarleg hjá stuðningsfólki Liverpool en sá ungverski biðlar til stuðningsmannanna og skorar á þá að standa með liðinu.
Szoboszlai hafði komið Liverpool yfir í fyrri hálfleik á móti Tottenham á Anfield áður en Richarlison jafnaði fyrir gestina á 90. mínútu. Þá voru sumir stuðningsmenn þegar byrjaðir að halda í átt að útganginum á meðan þeir sem eftir voru púuðu á knattspyrnustjórann Arne Slot og leikmenn hans þegar leiknum lauk. „Mér finnst að það ætti að vera eðlilegt að við stöndum þéttar saman á erfiðum tímum því það er það sem við þurfum, við þurfum á hvort öðru að halda,“ sagði Szoboszlai eftir leikinn. 🚨 Dominik Szoboszlai: “We have to wake up because if we carry on like this, we should be happy with the Conference League”.“I don't know why this is happening, I honestly don't know…”. pic.twitter.com/WnumJ45ZgI— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) March 15, 2026 „Við viljum gleðja þá, það er ekki eins og við gerum þetta viljandi. Við viljum gleðja okkur sjálfa, gleðja alla stuðningsmenn Liverpool, en við þurfum á þeim að halda. Á síðasta ári var örugglega ánægjulegt að horfa á alla leikina en á þessu ári er það kannski ekki eins ánægjulegt, það get ég vel ímyndað mér. En styðjið okkur samt líka þegar við eigum erfitt,“ sagði Szoboszlai. Við erum fjölskylda „Auðvitað [skil ég gremjuna]. En eins og ég sagði, þeir mega vera reiðir en standið með okkur því við erum fjölskylda, við þurfum á ykkur að halda. Við viljum gleðja þá svo höldum bara saman,“ sagði Szoboszlai, Jafntefli Liverpool gegn Tottenham þýðir að liðið færist upp í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, þótt það hafi misst af tækifæri til að komast í fjórða sætið eftir töp Chelsea og Aston Villa um helgina. Það þýðir að vonir þeirra um að komast í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili hanga á bláþræði, á meðan Rauði herinn þarf einnig að vinna upp 1-0 tap úr fyrri leiknum gegn Galatasaray í 16-liða úrslitum á miðvikudagskvöld. Höfum ekki mikinn tíma til að gera þetta rétt „Við áttum samtal saman fyrir nokkrum vikum þar sem við sögðum: „Strákar, við höfum ekki mikinn tíma til að gera þetta rétt svo við verðum að vakna og byrja að spila á þann hátt að við viljum spila í Meistaradeildinni á næsta tímabili,“ sagði Szoboszlai. „Við mætum Galatasaray á miðvikudag og það verður erfiður leikur því við fundum fyrir því þar.“ Það hjálpar okkur alls ekki „Ég held að það hjálpi okkur heldur ekki að fólk byrji að fara heim eftir áttatíu mínútur, það hjálpar okkur alls ekki. Standið með okkur. Allir taka eftir því og þegar við fáum á okkur mark er fólk enn að yfirgefa völlinn. Þið farið ekki þegar við skorum. Ég skil gremjuna en við þurfum á þeim að halda, við þurfum á öllum að halda, og það er það mikilvægasta,“ sagði Szoboszlai. „Ég er ekki að segja að þeir hafi engan rétt til að yfirgefa völlinn, þeir geta farið ef þeir vilja. Við þurfum á þeim að halda og þeir ættu að vita það. Við erum einum færri án þeirra. Ég ætla að gera allt sem hægt er til að enda í efstu fjórum sætunum en einn er ég ekki nóg svo við þurfum á öllum að halda,“ sagði Szoboszlai. 🗣️ Dominik Szoboszlai on the fans: “I think it should be normal that in hard times we stick together more because that’s what we need, we need each other. We want to make them happy, it’s not that we do it on purpose. We want to make ourselves happy, make all the Liverpool… pic.twitter.com/cRYMWuf9QP— Anything Liverpool (@AnythingLFC_) March 16, 2026
Enski boltinn Liverpool FC Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Sjá meira